Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1985, Page 29

Læknablaðið - 15.05.1985, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ 133 unnið betur úr prestsþjónustubókinni með því að athuga jafnframt frá hvaða bæjum gin- klofabörnin voru, og hver ljósa þeirra var. Ég hef gert slíka athugun fyrir 5 fyrstu árin, 1785- 1789. Að ekki er tekið lengra tímabil stafar af því, að eftir 1789 er prestsþjónustubókin ekki jafn nákvæm og fyrir þann tíma, að þvi leyti að hætt er að geta frá hvaða bæjum börnin eru, aðeins getið nafna foreldranna, og getur þá reynst tafsamt að hafa upp á bæjarnafn- inu. Ljósmóðurina er ætíð að finna meðal guðfeðginanna við skírn barnsins. Þær eru 3 á umræddu 5 ára bili, Þuríður Jónsdóttir (f. um 1741), prófuð af Bjarna landlækni Pálssyni 1773, og var hún langmest notuð. Þórunn Ólafsdóttir (f. um 1749), sögð ljósmóðir, og Guðrún Hróbjartsdóttir (f. um 1743), en þær eru aðeins við 4 og 5 fæðingar, svo erfitt er að leggja nokkurt mat á, hvort ginklofi muni tíðari hjá einni ljósmóður en annarri, og allar eru þær starfandi í báðum sóknum Eyjanna. í yfirliti yfir ungbarnadauða úr ginklofa eftir heimilum, sem hér fylgir, kemur fram, að verulegur munur er á dánartölunum í hinum tveim sóknum, hún er 2-3 sinnum hærri í Kirkjubæjarsókn, sem er fyrir neðan Hraun, en í Ofanleitissókn, sem er fyrir ofan Hraun- ið. Og það má renna grun í ástæðuna fyrir mismuninum við lestur fornra lýsinga á vatnsbólum eyjaskeggja. í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns segir: »Á Vilborgarstöðum í túninu er vatnsból, hvar til Yfirlit yfir ungbörn látin úr ginklofa í Vestmannaeyjum 1785-1789 eftir heimilum og kirkjusóknum. Bæir Fjöldi látinna Gvendarhús......................... 3*) Norðurgarður........................ 3 Dalir............................... 1 Ömpuhjallur......................... 1 Ofanleitissókn alls 8 Vilborgarstaðir....................... 11 Presthús............................... 6 Kirkjubær.............................. 2 Búastaðir.............................. 2 Kokkhús................................ 1 Kirkjubæjarsókn 22 *) í Gvendarhúsum er eitt barnanna sagt dáið úr ginklofa 27. maí 1789, viku gamalt, en í skrá yfir fædda er fæðingardagur þess 24. mai, svo að hæpið er að það hafi verið úr stífkrampa. Er það eina barnið í yfirlitinu, sem svo stendur á um. sækja allir þeir kringumliggjandi bæir sumur og vetur, mæta Vilborgarstaðamenn hér af stórum átroðningi kauplaust, hvað þeim þungt þykir, jafnvel þótt þeir umliggjandi bændur séu skyldir til að hreinsa vatnsbólið oghalda því við magt þáóskað er« (1. bd., bls. 6). Séra Gissur Pétursson í Ofanleiti skrifar um svipað leyti og Jarðabók Eyja er samin: »Almennilegt vatnsból alls byggðarlagsins er inni i Herjólfsdal. Þar er ætíð nóglegt vatn, og er þangað á hestum sótt alls staðar úr byggð, þá vatn þrýtur í brunnum heima við bæi í langþerrum« (C 6, 97). Og síðar: »Tveir brunnar eru og í skriðuhólnum í Herjólfsdal, þar bærinn hefur staðið og kemur vatnið þar rétt upp úr grjótinu. Þar þvo konur léreft sín« (sama, bls. 98). Og um vatnið í uppsprettu í Klettshelli segir: »að öllu líkt því vatni undir Löngu, sem danskir og fleiri brúka fyrir neyzluvatn« (C 6, 98). Loks ritar svo séra Jón Austmann 1839: »Hér við bætist sá ókosturinn, sem stundum ríður af allan baggamuninn. Er það vatns- skorturinn, því hér eru, eins og áður er ávikið, engir uppsprettu brunnar, nema Vilpa, og verða menn því, einkum þeir, sem búa fyrir ofan Hraun, að sækja stundum allt vatn (á hestum) inn í Herjólfsdal. Kemur þetta helzt upp á í þurrkum á sumrum, en gaddi og kælu á vetrum« (C 6, 153). Eins og fram kemur í skýrslu Klogs land- læknis, tíðkaðist það, að ljósmæður hér á landi tækju börnin heim til sín eftir fæðingu- na og hefðu hjá sér fyrstu vikuna eða lengur. Af þeirri tilhögun má telja líklegt, að Eyja- börnin hafi smitast af ginklofa á bænum, sem þau fæddust á, og þá væntanlega þegar gengið var frá læksstúfnum. í skýrslu sinni segist Klog hafa gefið ljósmæðrunum leiðbeiningar um umbúnað á honum, en því miður getur hann ekki um, hverjar þær voru, og ekki komu þær að haldi við ginklofann. í fyrstu prentuðu íslenzku ljósmæðrabókunum (1749 og 1789) er gert ráð fyrir að ljósmóðirin hafi í fórum sínum band til að binda um lækin og olíuna, oftast bómolíu, nýtt smér, en hvort hún lagði einnig til rýjuna, sem olían var borin í áður en henni var vafið um læksstúfinn, er ekki eins öruggt, og áreiðanlega hafði hún ekki með sér vatnið, sem barnið var laugað í áður en það var gert. En hafi það verið úr bæjarvilpunum, sem Sveinn læknir Pálsson

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.