Læknablaðið - 15.05.1985, Page 59
LÆKNABLAÐIÐ
153
haustið 1984 var gerð endurskoðun á launum
sjúkrahúslækna, og hinn 10. desember var
gengið frá hækkunum, svipuðum þeim, sem
B.H.M. hafði fengið fram.
Samningur heimilislœkna utan heilsu-
gœzlustöðva var undirritaður 10. apríl 1984.
Gildistími var til áramóta. Helztu nýmæli í
samningnum voru þau, að númerakerfið var
afnumið.
Fyrir unnin læknisverk er greitt samkvæmt
gjaldskrá heilsugæzlulækna. Greiðslur í
Námssjóð og Lífeyrissjóð lækna héldust
óbreyttar til áramóta, en greiðslur í veikinda-
forföllum og orlofi verða hliðstæðar þeim,
sem heilsugæzlulæknar njóta. Námsferðir
fengu heimilislæknar ekki. Gengið var frá
lífeyrisgreiðslum fyrir eldri lækna, sem fá
lífeyrisgreiðslur eins og þeir hefðu starfað sem
héraðslæknar.
Skilyrði fyrir stuðningi L.R. við kerfisbreyt-
ingu heimilislæknisþjónustu í Reykjavík var,
að til væri samningur fyrir lækna, sem vilja
starfa utan heilsugæzlustöðva. Ýmsar blikur
eru á lofti varðandi breytingu í kerfi heilsu-
gæzlustöðva á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Það er því knýjandi nauðsyn, að heimilislækn-
um utan heilsugæzlustöðva séu sköpuð skil-
yrði til að halda uppi sambærilegri þjónustu
við heilsugæzlustöðvar.
Fundur um gjaldskrá sérfrœðinga var hald-
inn 20. september 1984.
SameiginlegurfundurL.íog L.R. var hald-
inn 27. desember 1984. Var þar kynnt kröfu-
gerð sjúkrahúslækna.
Almennur fundur í L.R. var haldinn 14.
febrúar 1985. Umræðuefnið var: Staðan í
kjaramálum lækna. Framsögu höfðu for-
menn samninganefnda, þeir Sveinn Magnús-
son, Gunnar Ingi Gunnarsson og Jón Níels-
son. Formaður kynnti stöðuna í sérfræði-
samningamálum.
Á þessum fundi var einnig kynnt tillaga
stjórnar L.R. um kjör í meðstjórn og vara-
stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Einnig
var kynnt tillaga stjórnar um kjörna fulltrúa
og varafulltrúa á aðalfund L.í. Aðrar tillögur
bárust ekki um framboð fyrir aðalfund 1985.
Stjórnarfundir
Aðalstjórn hefur haldið 33 fundi á starfsár-
inu. Fundir með meðstjórn voru níu. Sam-
eiginlegir fundir með stjórn L.í. voru þrír.
Samvinna stjórna félaganna hefur verið mjög
góð og hafa formenn félaganna starfað
saman að ýmsum málum.
Aðrir fundir og mannamót
Aðalstjórn L.R. sat kjaramálafund L.í. 29.
maí 1984. Einnig sat stjórnin fund stjórna
norrænu læknasamtakanna, Nordisk Cen-
tralstyrelsemöte, sem haldinn var í Reykjavík
17.-20. júní 1984. Fundir þessir eru haldnir á
tveggjaára fresti og var þettaí fyrstasinn, sem
slíkur fundur er haldinn á íslandi. Vísast til
ársskýrslu L.í. 1983-1984.
Formaður sat kjaramálaráðstefnu F.Í.H.,
sem haldin var 29. september 1984.
Afmœlishátíð L.R. var haldin 19. og 20.
okt. 1984. Félagið var stofnað 18. október
1909 og því 75 ára. Stjórn L.R. myndaði
afmælishátíðarnefnd ásamt Árna Björnssyni
og Erni Smára Arnaldssyni, og var Árni
formaður nefndarinnar. Sofie Markan var
ritari nefndarinnar. Ákveðið var að líta upp
úr amstri hversdagsins, slá á léttari strengi og
halda hátíð helgaða tómstundaiðju lækna.
Sett var upp sýning í Domus Medica, þar
sem sýnd voru listaverk lækna. Jóhannes
Jóhannesson listmálari og Guðmundur Bene-
diktsson myndhöggvari settu upp sýninguna.
Formaður L.R. setti hátíðina í Domus
Medicaundir kvöld þann 19. október. Víking-
ur H. Arnórsson flutti hátíðarræðu.
í tilefni afmælishátíðarinnar hafði stjórn
og meðstjórn einróma kosið sem heiðursfé-
laga þá Arinbjörn Kolbeinsson, yfirlækni,
Þórð Þórðarson, yfirlækni, og Sigurð Sigurðs-
son, fyrrverandi landlækni, en þeir eru allir
fyrrverandi formenn félagsins.
Formaður L.R. ávarpaði hina nýju
heiðursfélaga og afhenti heiðursskjöl.
Arinbjörn Kolbeinsson þakkaði af þeirra
hálfu.
Þórarinn Guðnason stjórnaði bókmennta-
vöku um kvöldið. Þar lásu læknar úr verkum
látinna íslenzkra lækna um annað en læknis-
fræði.
Að morgni 20. október var í Domus Medica
sett læknaráðstefna með hefðbundnu sniði.
Tólf læknar fluttu stutt og snjöll erindi um
tómstundaiðju sina og svöruðu fyrirspurn-
um. Ráðstefnustjóri var Högni Óskarsson, og
flutti hann eina læknisfræðilega ávarp
ráðstefnunnar. Fjallaði það um áhrif tóm-
stundastarfa á geðheilsu.
Eftir hádegi var opið hús með tónlistar-