Læknablaðið - 15.05.1985, Qupperneq 64
156
LÆKNABLAÐIÐ
verður samkvæmt samningi Domus Medica
og læknafélaganna við Reykjavíkurborg ekki
ráðstafað án samráðs við þá aðila.
Samskipti lcekna. Eftir að tilvísanir voru
felldar niður sem greiðsluheimild sjúkratrygg-
inganna til reynslu í eitt ár, bárust kröftug
mótmæli frá F.Í.H. og frá fundi landlæknis
og héraðslækna.
Sérfræðingar telja, að niðurfellingin hafi
gefist vel og sé sjúklingum til verulegs hægð-
arauka og einföldunar. Heimilislæknar telja,
að misbrestir séu á upplýsingamiðlun sér-
fræðinga til þeirra.
Viss tortryggni ríkir milli þessara lækna-
hópa, og notfæra viðsemjendur lækna sér
þetta á ýmsa vegu. Læknar verða að útkljá
ágreining sinn innan eigin samtaka.
Codex Ethicus kveður á um samskipti
lækna innbyrðis, en þörf virðist á að hnykkja
á vissum atriðum. Komið hefur verið á
starfshópi, sem vinnur að því að koma
samskiptum lækna í fastara form. F.Í.H.
hefur tilnefnt þá Bjarna Jónasson, Jóhann
Ágúst Sigurðsson, Jóhann Tómasson og
Stefán B. Matthíasson í starfshópinn. Frá
Sérfræðingafélaginu eru tilnefndir Björn
Árdal, Guðmundur Vikar Einarsson og
Guðmundur Steinsson. Formaður L.R. stýrir
hópnum. Ætlunin er að leggja niðurstöður
hópsins fyrir almennan fund í lok marz.
Hér að framan hefur verið stiklað á stóru.
Mörg stórmál eru og verða á döfinni hjá
læknum. Ljóst er, að kjör allra lækna hafa
stórversnað áundanförnum árum. Uppsagnir
heilsugæzlulækna og heimilislækna segja
sína sögu. Samningar sjúkrahúslækna, sér-
fræðinga utan sjúkrahúsa, fastráðinna lækna
(heilsugæzlulæknar og ýmsir yfirlæknar og
forstöðumenn) og heimilislækna eru í gangi,
en miðar lítið. Sýnt er, að gjaldskrá heilsu-
gæzlulækna fer í gerðardóm.
Framundan eru átök. Úrslitin ráðast af því,
hvort við berum gæfu til að standa saman.
Sameinaðir sigrum við, sameinaðir getum við
haft þá forystu í heilbrigðismálum, sem okkur
ber að hafa. (K.B.)
Skýrslur nefnda
Skýrslu Námskeiðs- ogfrceðslunefndar. Starf
nefndarinnar hefur staðið með blóma sl. ár.
Nokkur mannaskipti hafa orðið í nefndinni,
en hana skipa nú: Pétur Lúðvigsson, for-
maður, Sveinn Magnússon, ritari, Haraldur
Briem, Jóhann Ág. Sigurðsson og Magnús
Jóhannsson.
Viðamesta verkefni nefndarinnar á árinu
var undirbúningur haustnámskeiðs, sem hald-
ið var dagana 26.-28. sept. 1984. Fjallað var
um geðsjúkdóma, smitsjúkdóma og ýmsar
nýjungar í læknisfræði. Þátttaka var góð.
Námskeiðið sóttu milli 80 og 90 læknar.
Það sem af er starfsárinu, hefur nefndin
undirbúið fjóra fræðslufundi og í janúar var
haldið málþing um bólusetningu. Aðsókn að
þessum fundum var ærið misjöfn, en einn
auglýstan fræðslufund varð að fella niður
vegna lélegrar þátttöku. Af næstu fundum á
vegum nefndarinnar má nefna málþing í lok
marz um útgjöld og sparnað í heilbrigðiskerf-
inu og kvöldfund um herpesveirusýkingar í
byrjun maí. Þá er hafinn undirbúningur
haustnámskeiðs, sem haldið verður dagana
23.-29. september í tengslum við aðalfund
L.í.
Nefndin hefur á árinu veitt fjárstuðning
vegna ferða og uppihalds innlendra og er-
lendra fyrirlesara á vegum svæðafélaga og sér-
greinafélaga eins og undanfarin ár. Þannig
mun nefndin á næstunni styðja námstefnur
um brjóstkrabbamein og framhaldsnám í
geðlækningum og námskeið um grundvallar-
atriði í ónæmisfræði og mólekuler erfða-
fræði.
Að tilhlutan Fræðslunefndar hafa L.í. og
L.R. nú fest kaup á færanlegum básum, sem
skapa munu aðstöðu til spjaldsýninga (»post-
ers«) á haustnámskeiði, og einnig bæta
aðstöðu lyfja- og áhaldasýnenda á haustþing-
um til mikilla muna. (P.L.)
Skýrsia Or/ofsnefndar. íbúð læknafélag-
anna á Akureyri og orlofshúsin i Brekkuskógi
hafa verið læknum til mikils gagns og gam-
ans. Nýting hefur ætíð verið góð að sumri, en
lakari að vetrinum einkum í Brekkuskógi. í
snjóleysinu í vetur hafa þó nokkir brugðið sér
austur, en svæðið er kjörið til skíðagöngu-
ferða. Aðstaða hefur öll batnað í Brekku-
skógi, gufubaðið er komið í fulla notkun og
verið er að ljúka við byggingu þjónustu-
miðstöðvar.
Nokkrar umræður hafa orðið um það,
hvort Orlofsnefnd sé heimilt að leigja út
íbúðina á Akureyri til lækna, sem eru þar við
vinnu. Þegar sérstaklega stendur á, telur
Orlofsnefnd réttlætanlegt að leigja íbúðina
sama aðila í, allt að 4 vikur samfellt, sam-