Læknablaðið - 15.05.1985, Qupperneq 65
LÆKNABLAÐIÐ
157
kvæmt greinargerð í Fréttabréfi lækna nr. 12,
1984.
Engin ákvörðun hefur verið tekin um kaup
á fleiri orlofshúsum, en aðalfundur Lækna-
félags íslands 1983 ályktaði, að næsta fjár-
festing Orlofsnefndar yrði kaup á íbúð í
Reykjavík. Telur Orlofsnefnd ekki enn vera
fjárhagslegan grundvöll fyrir þessu. (J.S.)
Skýrsla samninganefndar heimilislcekna utan
heilsugœzlustöðva. Samningur heimilislækna
frá 10. apríl 1984 rann út 31. desember 1984.
Á þeim tíma var frestað gildistöku laga um
heilbrigðisþjónustu, þ.e. þess ákvæðis, sem
kveður á um, að opinberar heilsugæzlu-
stöðvar skuli risnar um land allt. Frestunin
var til 31. des. 1985.
Samninganefnd var skipuð í lok nóvember,
og skipa hana Sveinn Magnússon, formaður,
Guðmundur Elíasson, Haukur S. Magnús-
son, Jón Bjarni Þorsteinsson og Sigurður
Sigurðsson. Samningaviðræður við T.R.
hófust um 20. des. 1984, og eru helztu kröfur
um bætta rekstrarmöguleika læknastofa,
möguleikar til námsferða bættir, lífeyris-
sjóður bættur, aldurs- og starfsreynsluþrep á
mánaðargjald. Gert er ráð fyrir áframhald-
andi notkun gjaldskrár heilsugæzlulækna, en
samningur um hana rann út 28. febrúar 1984,
og er búið að vísa málinu til gerðardóms.
Einnig er gert ráð fyrir, að ákvæði um
bæjarvakt verði felld út og gerð að sérstökum
samningi, sem yrði að vera frágenginn fyrir 1.
júní 1985.
Haldnir hafa verið margir fundir með T.R.
og ýmis atriði þokast í rétta átt og samnings-
aðilar farnir að nálgast í mörgu. Of snemmt er
hins vegar að segja til um árangur, og einnig er
ljóst, að þrjú atriði verða óljós í samningnum,
ef undir hann yrði ritað fljótlega:
1. Mánaðargjald fer eftir útkomu sérkjara-
samnings heilsugæzlulækna, sem eru i
B.H.M.
2. Gjaldskrá er búið að vísa í gerðardóm.
3. Ósamið yrði um vaktir.
Að sjálfsögðu verður ekki samþykkt, að
frágangur þessara þriggja atriða dragist fram
yfir 1. júní n.k., og útkoman úr þeim mun
væntanlega hafa mikil áhrif á uppsagnir
margra heimilislækna, þótt þær séu samn-
inganefndinni óviðkomandi, en þær munu
taka gildi 1. júní 1985 (S.M.)
Kjaramál heimilislœkna. Þann 29. septem-
ber 1984 héldu heimilislæknar kjara-
málaráðstefnu. Þegar menn höfðu kannað
ýmsar aðferðir til að knýja á um bætt
launakjör, varð ljóst, að uppsagnir væru það
neyðarúrræði, sem flestir sættu sig við. Hér
er ekki verið að ræða um uppsagnir sem
skyndihjálp í vonlítilli kjarabaráttu, held-
ur lokaákvörðun manna, sem sætta sig
ekki lengur við óbreytt ástand. Uppsagnir
voru lagðar fram 11. febrúar 1985.
Gjaldskrársamningur. Frá 1974 hefur
tvivegis tekist að ná samkomulagi við Trygg-
ingastofnun ríkisins um gjaldskrá heilsu-
gæzlulækna, þ.e. 1979 og 1983. Síðasti samn-
ingur rann út 1. marz 1984, og enn hafa samn-
ingar ekki náðst.
Þessi staðreynd segir alla þá sögu, sem hér
þarf að koma fram. Nú hefur verið ákveðið að
leggja þetta mál fyrir gerðardóm.
Sérkjarasamningur fastráðina lcekna. Sér-
kjarasamningur fastráðinna lækna hefur vesl-
ast undanfarin ár á sama hátt og kjör annarra
háskólamenntaðra í þjónustu ríkisins.
Viðræður hafa ekki borið neinn árangur til
þessa. Þetta mál lendir sennilega fyrir Kjara-
dómi bráðlega. Verið er að undirbúa mál-
flutning. (G.I.G.)
Skýrslasamninganefndarsérfrœðingautan
sjúkrahúsa. Þann 1. apríl tók gildi nýr
samningur T.R. og S.R. Samkvæmt þessum
samningi voru tilvísanir, sem greiðsluheimild,
lagðar niður til reynslu í eitt ár. Sérfræðingar
fengu rétt til uppsagna með þriggja mánaða
fyrirvara. Einnig var ákvæði í þessum samn-
ingi um, að gjaldskrá sérfræðinga yrði
endurskoðuð og því lokið innan níu mánaða.
Breyting varð á greiðslum fyrir viðtöl að ósk
viðsemjenda. Tekin voru meðaltalsviðtöl við
hinar ýmsu sérgreinar og einingarfjöldi
reiknaður í samræmi við það, sem verið hafði
árið á undan.
Samninganefndin hefur síðan haldið fjölda
funda með fulltrúum hinna ýmsu sérgreina og
fulltrúum T.R. og S.R. um endurskoðun
gjaldskrár, og hefur því verki miðað seint.
Samkomulag er um, að gjaldskráin skuli
miðuð við störf sérfræðinga utan sjúkrahúsa,
en annar vinnuhópur var tilnefndur til að
vinna að gjaldskrá fyrir sérfræðinga á
sjúkrahúsum.
Vonir standa til þess, að þessari endur-
skoðun ljúki í marz 1985, en væntanleg
gjaldskrá mun gilda frá síðustu áramótum.
(H.J.)