Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 151 LÆKNABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag íslands og H Læknafélag Reykjavíkur LRl | ■ 9|o Q | 72.ÁRG. - 15. ÁGÚST 1986 ÓMSKOÐANIR í ÍSLANDI Rúmur áratugur er liðinn síðan sónarskoð- anir eða ómskoðanir, eins og nú er gjarnan farið að nefna þessa greiningartækni, hófust hér á landi á kvennadeild Landspítalans. Sonar er skammstöfun á »Sound Naviga- tion and Ranging«. Rannsóknin er oftast kölluð »ultrasound«, en einnig wsonograp- hy« eða »echography«, sem höfðar til bergmáls, »echo«, endurómunar og af því er leitt orðið ómskoðun. Orðið er stutt og lag- gott, einkum í samsettum orðum, eins og ómsjá, ómskjár, ómríkur eða ómsnauður. Ómi er skáldskaparheiti á Óðni, höfðar til raddar guðanna og því sæmir að kalla óma, lækninn sem óminn greinir. Mjög miklar tækniframfarir hafa orðið á þessu sviði á þeim tíma sem liðinn er síðan ómskoðanir hófust. Tækin eru minni og meðfærilegri. Frumatriði um notkun þeirra eru tiltölulega auðlærð. Myndgæði eru orðin mikil með góðri upplausn og gráma, auk hreyfitækni í myndgerð (kviksneiðar, real- time). Miðað við B-sjónunar-tæki fyrri ára er notkunarsviðið nú mun víðara og grein- ingarmöguleikar margfaldir. Greining sjúk- dómsástands í ýmsum kviðarholsliffærum, svo sem lifur, gallvegum, brisi og þvagveg- um, hefur orðið nákvæmari. Nýir möguleik- ar hafa opnast með ómmiðuðum ástungu- aðferðum og ómskoðun með Doppler- tækni til að meta blóðflæði. Notagildi í hjartasjúkdómum, skjaldkirtils-, augn- og nefholsmeinum, svo og í grindarholi er vel þekkt. Á sviði nýburafræði er ómskoðun beitt í vaxandi mæli við leit að heilablæð- ingu, víkkuðum heilahólfum og vanskapnaði heila. Langmest er þó notkun ómrannsókna við skoðun á burði þungaðra kvenna. Um 8 til 9 þúsund slíkar skoðanir eru nú gerðar árlega á fslandi. Nær allar þungaðar konur fara einu sinni eða oftar í ómskoðun á meðgöngunni og er það við þær skoðanir, sem flestir hafa kynnst ómskoðunum. Sýnt hefur verið fram á það, að fari konur í ómskoðun á fyrri hluta meðgöngu verður ráðgjöf og meðhöndlun á meðgöngu mark- vissari, með jákvæðum áhrifum í þá átt að draga úr veikindum og dauða á burðarmáls- og nýburatímanum. Þetta verður vegna miklu nákvæmari vitneskju um með- göngulengd, um fleirbura og fylgjustaðsetn- ingu og vegna tímanlegri greiningar skapnað- argalla (2, 3, 4, 5, 6). Á 25 ára timabili hafa engin óæskileg áhrif af ómun fundist á liffærastarfsemi, vöxt, þroska eða hegðun dýra, barna eða full- orðinna manna né heldur á litninga, kjarna sýruefnaskipti, kynkirtla eða æxlismyndanir í frumum, dýrum eða mönnum (4, 7). Enda þótt í nýlegu bandarísku nefndaráliti (4) hafi menn ekki treyst sér til að mæla með þessum skoðunum sem venjubundinni rann- sókn í eftirliti (routine), þá voru ábendingar um skoðun svo margar, alls 28, að vart er nokkur þunguð kona sem ekki er ástæða til að ómskoða. í Evrópu hefur víða verið mælt með ómskoðunum hjá öllum konum og í Vestur-Þýskalandi hafa tryggingafélög gert ráð fyrir tveimur skoðunum á meðgöngu, fyrir 20. viku og á síðasta þriðjungi meðgöngu (7). Rannsóknir þar sem hending ræður vali í hópa (randomisation), hafa ekki sýnt svo óyggjandi sé, að almenn skoðun á síðasta þriðjungi meðgöngu leiði til betri greiningar á vaxtarseinkun fósturs (2, 4), en formgallar hafa verið á slikum rannsóknum og spurn- ingunni um gagnsemi slíkra venjurannsókna á síðasta þriðjungi meðgöngu er því ósvarað. Hér á landi ætti að vera hægt að leggja lóð á þá vogarskál. Hvernig á að vinna að ómskoðunum á íslandi? Hvar á að skoða, hvernig á að skoða, hverja á að skoða og hve oft? Hvað á að skoða á hverjum stað? Hvert á að senda vandasöm úrlausnarefni og hvernig á að meta árangur starfseminnar? Svörin eru ekki einföld, en ljóst má vera, að einhvers konar skipulag er nauðsynlegt, bæði hvað varðar staðsetningu og val tækja og kunnáttu þeirra, sem með þau fara.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.