Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 44
180 LÆKNABLAÐIÐ ur í endurtekið sleglatif. Endurlífgun bar árangur. Fimm sjúklingar urðu fyrir kransæða- skemmdum. Einn hefur þegar verið nefndur, en hann fékk sleglatif í kjölfarið. Hinir fjórir fengu brjóstverk, blóðþrýstingsfall og línu- ritsbreytingar sem stóðu stutt yfir. Þeir út- skrifuðust allir. Skuggaefni í hjartavöðva fengu fjórir sjúklingar, þar af tveir nýburar með meðfædda hjartasjúkdóma, en frekari fylgi- kvillar urðu ekki. Sá þriðji var 42ja ára karlmaður. Við inndælingu í hægri kransæð fór skuggaefnið í hjartavöðvann. Sjúklingur fékk brjóstverk og var þræðingu hætt. End- urtekin rannsókn sýndi lokaða hægri kran- sæð. Fjórði sjúklingurinn var 30 ára karl- maður með hjartavöðvasjúkdóm. Eftir inn- dælingu skuggaefnis í vinstri slegil fór skug- gaefnið í hjartavöðvann. í kjölfarið fékk sjúklingur hraðan sleglatakt (ventricular ta- chycardia) og brjóstverk. Lyfjameðferð bar árangur. í þremur sjúklingum féll blóðþrýstingur niður í hættumörk og aðrir þrír fengu blæðingar, þar sem sérhæfðrar meðferðar var þörf. Loftbrjóst fékk 33ja ára karlmaður með ósæðarlokuþrengsli. Ekki tókst að koma æðalegg niður í vinstri slegil frá ósæð. Var því gerð ástunga á vinstri slegil í gegnum brjóstvegg, þannig að unnt væri að mæla þrýstingsfallið yfir lokuna og meta þrengslin. í kjölfarið fékk sjúklingur loftbrjóst, en svaraði hefðbundinni meðferð. Þrír sjúklingar fengu blóðtappa út í slag- æðakerfið. Sjötíu og þriggja ára kona með míturlokusjúkdóm og 67 ára karlmaður með kransæðasjúkdóm fengu blóðtappa í mið- taugakerfið. Konan fékk sjóntruflanir, en karlmaðurinn lömun. Einkennin gengu algjörlega til baka hjá báðum. Þriðji sjúklingurinn var 55 ára karlmaður með kransæðasjúkdóm. í kjölfar þræðingar fékk hann einkenni um slagæðarstíflu í ganglim, sem þurfti aðgerðar við. Niðurstöður þrœðinganna. Tvö hundruð og þrjátíu (11,5%) þræðingar leiddu ekki í ljós neina sjúkdóma og í 39 tilvikum (1,95%) varð að hætta við rannsóknina vegna tækja- bilunar eða fylgikvilla. Tafla II sýnir fjölda einstaklinga sem greindust með kransæða-, hjartaloku- eða meðfædda hjarta- og æðasjúkdóma. Hund- Table I. Specific types of major complications ob- served in 2000 consecutive cardiac catheterizations in 27 patients. Major complications Number Percentage Deaths . 4*) 0.20 Myocardial infarct . 1 0.05 Perforation (ventricle) . 2 0.10 Arrhythmias Asystole . 5**) 0.25 Ventricular fibrillation . 1 0.05 Coronary dissection . 5 0.25 Contrast medium in myocardium. . 4 0.20 Vascular perforation . 1 0.05 Hypotension . 3 0.15. Hematoma . 3 0.15 Pneumothorax . 1 0.05 Arterial embolization . 3 0.15 Total 33 1.65 *) One after coronary arteriography, three in neonates with malfermations of the heart. **) Two were transient. Table II. Catheterization results <2000 procedures). Results Number Percentage Normal 230 11.5 Incomplete 39 1.9 Coronary artery disease 1085 54.2 Valvular disease Aortic valve disease 172 8.6 Mitral valve disease 107 5.3 Congenital disease 292 14.6 Other cardiac and vascular diseases 143 7.1 Table III. Classification of valvular lesions in 357 in- dividuals. Valvular disease Number Percentage Aortic valve disease . 290 14.50 Aortic stenosis 107 5.35 Aortic regurgitation 102 5.10 Aortic bicuspid valve 13 0.65 Calcification of aortic valve without stenosis or regurgitation 68 3.40 Mitral valve disease . 126 6.30 Mitral stenosis 32 1.60 Mitral regurgitation 85 4.25 Mitral prolapse 9 0.45 Pulmonic valve stenosis 60 3.00 Other valvular diseases 18 0.90 Total valvular lesions 494

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.