Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 8

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 8
154 LÆKNABLAÐIÐ SIÐANEFNDARÚRSKURÐUR BIRTUR « Hinn 3. apríl 1986 afhenti Jón K. Jóhanns- son læknir undirrituðum afrit af bréfi sínu, dagsettu sama dag, til Læknafélags íslands. í bréfinu dregur Jón til baka áfrýjun til Gerðardóms Codex Ethicus Læknafélags íslands á úrskurði siðanefndar Læknafélags íslands um skrif Jóns K. Jóhannssonar til heilbrigðismálaráðherra 7. júní og 17. sep- tember 1984, samanber Læknablaðið 1985; 71:391, þar sem er að finna dómsorðin í máli þessu. Jón óskar eftir því, að bréf hans verði birt í Læknablaðinu. í framhaldi af því var ljósrit af bréfinu sent hlutaðeigandi aðilum og þeim gefinn kostur á að gera athuga- semdir. Ólafur Jónsson læknir óskaði ekki eftir að tjá sig um málið. Ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins svo og landlæknir kváðust ekkert hafa um málið að segja. Formaður Gerðardóms tilkynnti undirrit- uðum, að dómurinn myndi taka til greina ósk Jóns um að draga áfrýjun sína til baka. Athugasemdir Páls Þórðarsonar fram- kvæmdastjóra læknafélaganna fara hér á eftir. í samræmi við óskir Jóns K. Jóhannssonar birtast síðan bréf hans til L.í. 03.03.1986 og úrskurður siðanefndar L.í. 05.03.1985. Að lokum skal minnt á, að fyrir liggur ávörðun stjórnar L.í. um, að eftirleiðis skuli úskurðir siðanefndar félagsins birtir sérstak- lega i Fréttabréfi lækna. öb. Athugasemdir í ársskýrslu Læknafélags íslands fyrir starfsárið 1984-1985, sem lögð var fyrir aðalfund félagsins í september 1985 og síðan birt í 9.tbl. Læknablaðsins sama ár, er m.a. smákafli um siðanefnd L.í. í samræmi við þá venju, sem skapast hefur frá því að siðanefnd var stofnuð árið 1978, er skýrt stuttlega frá málavöxtum þeirra ágreiningsefna, sem nefndin hefur fjallað um, en úrskurðarorð hafa verið birt orðrétt. í máli þvi, sem hér um ræðir, var sami háttur á hafður og tel ég að við samanburð á úrdrættinum sem birtist í tilvitnaðri árs- skýrslu (í Læknablaðinu) og dóminum í heild komi í ljós að engu hefur verið sleppt þar, sem máli skiptir. í bréfi Jóns koma hins vegar fram atriði, sem hvorki koma fram í gögnum siðanefnd- ar, né í niðurstöðum hennar. P.Þ. Til Læknafálags íslands c/o Páll Þórðarson, framkvæmdastjóri Vegna frásagnar á bls. 313 í 9.tbl. Lækna- blaðsins dags. 15. nóv. 1985 um úrskurð Siðanefndar L.í. i klögumáli Ólafs Jóns- sonar, trúnaðarlæknis Félags ísl. atvinnu- flugmanna (FÍA) á mig, vantar nokkrar stað- reyndir sem varpa skýrara ljósi á málið og óska ég því birtingar í Læknablaðinu á eftir- farandi, svo kollegar geti betur áttað sig á málavöxtum. Aðdragandi þessa máls er sá, að í mai 1984 áttu flugmenn í kjaradeilu við Flugleiðir h.f. og þann 18.5. 1984 tilkynntu 28 flugmenn sig veika, en þeir hinir sömu áttu einmitt að fljúga samkvæmt áætlun þann dag og féll allt flug niður af þessum sökum. Stjórn Flugleiða h.f. óskaði þá eftir læknisvott- orðum vegna þessara fjarvista og bárust átta vottorð frá jafnmörgum læknum. Þáverandi samgönguráðherra, Matthías Bjarnason, sem jafnframt var ráðherra heilbrigðismála, óskaði þess þá við mig sem trúnaðarlækni Flugleiða h.f. að ég tæki þessi vottorð saman og sendi sér, hvað ég gerði ásamt bréfi, sem birt er orðrétt í ofannefndu tölublaði Lækna- blaðsins. Ólafur Jónsson, trúnaðarlæknir flug- manna (FÍA) er sá eini sem kvartar yfir um mælum mínum til ráðherra um »pöntuð tækifærisvottorð« flugmanna í kjaradeilu. Rétt er að ég hafði ekki samband við Ólaf, en orðrétt hljóðar vottorð hans svo:

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.