Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.08.1986, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ 183 að stór hluti þeirra sjúklinga, sem gangast undir hjartaþræðingar eru alvarlega sjúkir. Hvað kransæðaþræðingu snertir, hefur reynslan alls staðar verið sú, að þeir sjúklingar sem verstan hafa krans- æðasjúkdóminn og því mesta þörf fyrir rannsóknina hafa hæsta tíðni alvarlegra fylgikvilla og dauðsfalla (13-17). Hildner og samstarfsmenn (18) sýndu meira að segja fram á, að fjöldi dauðsfalla varð síðustu tvo sólarhringana fyrir og næsta sólarhring eftir ráðgerða hjartaþræðingu, sem ekki var framkvæmd af einhverjum orsökum. Þetta sýnir einfaldlega, að þeir sjúklingar sem beint er í kransæðarþræðingu hafa sjúkdóm eða sjúkdóma, sem oft draga menn til dauða. Sérstaklega hefur dánartíðni verið há hjá sjúklingum með svæsna hjartaöng (class IV) og þrengsli í vinstri höfuðstofni. í flestum rannsóknum hafa þeir sjúklingar, sem látist hafa, annað hvort haft höfuðstofnsþrengsli eða útbreiddan sjúkdóm í þremur stærstu kransæðagreinunum. Eini sjúklingurinn, sem lést eftir kransæðaþræðingu í okkar hópi reyndist hafa þrengsli í vinstri höfuðstofni og að auki útbreiddan þriggja æða-sjúkdóm og nýlegt hjartadrep. Þessi dánartala (0,08% sé miðað við kransæðaþrengingar eingöngu), er mjög lág og reyndar lægri en í nokkrum birtum gögnum, sem okkur eru kunn (13-17) að frátöldu uppgjöri Karnegis og Heinz (19), sem aðeins tók til 745 fullorðinna einstak- linga, sem ekki gengust undir kransæða- myndatöku. Árið 1974 settu Judkin og Gander (20) fram þá skoðun, að dánartíðnin 0,1% væri æskilegt markmið í krans- æðarþræðingum. Bourassa og samstarfs- menn (16) komust hins vegar að þeirri niðurstöðu, að þessi krafa væri óraunhæf, of ströng og ekki við því að búast, að dán- artala a.m.k. þeirra sem hafa alvarlegan kransæðasjúkdóm færi niður fyrir 0,3%. Sú tala var reyndar sett fram sem viðunandi dánartíðni í nefndaráliti 1972 (21). Hin lága tíðni dauðsfalla við kransæðaþræðingar hér á landi stafar að einhverju leyti af ríkulegri notkun rannsóknarinnar og því lægra hlutfalli sjúklinga í mikilli hættu (»high risk«), en víðast annars staðar. Þó er lj óst að framkvæmd þræðinganna hefur tekist mjög vel hér á landi. í því sambandi er e.t.v. mikilvægt, að sérhver þræðing er fram- kvæmd sameiginlega af hjartalækni og röntgenlækni, sem báðir eru sérþjálfaðir i hjartaþræðingum, en óvanir einstaklingar koma hvergi nærri. Að lokum: Hjartaþræðingar hafa nú verið framkvæmdar á íslandi í um fimmtán ár með góðum árangri og mjög lágri tíðni al- varlegra fylgikvilla. Samt er eðli fylgikvill- anna slíkt, að tilefni rannsóknarinnar eða ábendingar verða að vera ríkulegar og rétt- læta hættu á lífshættulegum fylgikvillum, þótt sjaldgæfir séu. Hér sem annars staðar í læknisfræði verður ekki hjá því komist að vega ábendingu rannsóknarinnar á hinni mik- ilvægu vog, þar sem ávinningur sjúklings af þeim upplýsingum, sem rannsóknin veitir, er settur á aðra vogarskálina og möguleg áhætta af rannsókninni á hina. SUMMARY Cardiac catheterizations were begun at Landspítalinn, The University Hospital of Iceland, on a small scale in the early sixties. Since August 1970 these have been carried out on a regular basis and their execution, results and complications have been systematically recorded. By the end of 1983, 2,013 cardiac catheterizations have been recorded. The first 2,000 consecutive catheteriza- tions were retrospectively examined with emphasis on detailed analysis of the complications. A total of 1,807 individuals were catheterized 1,321 men (73.2%) and 483 women (26.8%). Approximately 70% of the pa- tients were 40-70 years old while around 10% were below age 10. Percutaneous technique was used in 69.1% while cut-down was applied in 24.8% and in 6.1% both techniques were utilized. Right heart cathe- terizations were 771 (38.5%) and left heart catheteri- zations were 1,610 (80.5%) including 134 cases in which the left side of the heart was entered through the for- amen ovale or a septal defect. There were 1,262 selective coronary arteriographies and their number has drama- tically increased during the last few years. While three such examinations were carried out in 1971 (total num- ber of catheterizations was 82), in 1977 they reached 38 (total number 95) and in 1983 they were 420 (of 461 total). Serious complications were recorded in 27 patients (1.35%). There were four deaths (0.2%), three of whom were newborn babies, two with transposition of the large arteries and one with persistent foetal circulation. There was one death following coronary arteriography (0.08%) in a patient with left main stenosis, severe three vessel disease and a recent myocardial infarct. There were 39 incomplete studies (1.95%) and 230 examinations revealed no disease (11,5%). Coronary artery disease was diagnosed in 1,085 patients, while 172 were found to have aorticc valve disease, 107 mitral valve disease and 292 patients some form of congenital heart disease. HEIMILDIR 1. Forssmann W. Die Sondierung des rechten Her- zens. Klin Wochenschr 1929; 8: 2085-7.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.