Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1986, Qupperneq 9

Læknablaðið - 15.08.1986, Qupperneq 9
LÆKNABLAÐIÐ 155 Reykjavík 18.5.1984 »Það vottast hér með að »N.N....etc....« kom til mín á lækningastofu í dag og tjáði mér að undanfarið hefði hann þjáðst af öndunarvegssýkingu og eyrnaverk og auk þess hafi hann haft undanfarið þrálátan höfuðverk og meltingartruflun. »N.N.« tel- ur sig óvinnufæran vegna þessa að minnsta kosti í dag. Skoðun leiðir í ljós áberandi roða á hægri hljóðhimnu. Ólafur Jónsson« (sign) Álit læknisins á vinnuhæfni skjólstæðings síns kemur hvergi fram. Ólafur Ólafsson, landlæknir »fær ekki séð neitt athugavert við framangreint vott- orð« í áminningarbréfi til mín og heldur því þar fram að svona sé kennt að gefa vottorð í Læknadeild Háskólans. í framhald af þessu spyr ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis- ins landlækni bréflega hvaða kennari læknadeildar hafi misskilið læknalögin svo herfilega. Þessu er ósvarað, það best ég veit. Heilbrigðis- og samgönguráðherra óskaði þess síðan við landlækni, að hann drægi áminninguna til mín til baka. Daginn eftir »veikindi« flugmannanna bráðbatnaði þeim öllum og mættu til starfa, enda höfðu þá tekist nýir kjarasamningar við þá. Þegar hér er komið málum kærir Ólafur Jónsson, læknir mig til Siðanefndar L.í. en neitaði sjálfur að mæta á fund nefndarinnar til að skýra mál sitt. Niðurstaða Siðanefndar verður síðan sú, að ég fæ áminningu fyrir að hafa látið i ljós álit mitt um »pöntuð tæki- færisvottorð« i bréfi til heilbrigðisráðherra. í ljósi ofantaldra staðreynda, sem hvorki koma fram í frásögn í Læknablaðinu né i úrskurði Siðanefndar, áfrýjaði ég úrskurð- inum til Gerðardóms fyrir rúmu ári síðan. Þar sem nokkuð er um liðið og ég er sjálfur alveg sáttur við eigin samvizku í málinu, vil ég hér með draga áfrýjun mína til baka, en láta í staðinn ofangreindar stað- reyndir tala sinu máli. Reykjavík, 3.3.1986 Virðingarfyllst, Jón K. Jóhannsson (sign.) Siðanefnd Læknafélags íslands Ár 1985, þriðjudaginn 5. mars, komu saman á fund í siðanefnd Læknafélags íslands, þau Guðmundur Pétursson, Þorgeir Gestsson og Auður Þorbergsdóttir. Vegna erindis stjórnar Læknafélags ís- lands í bréfi, dagsettu 2. nóvember 1984, kveður siðanefnd L.í. upp svofelldan úr- skurð: Með ofangreindu bréfi óskaði stjórn L.í. eftir úrskurði siðanefndar L.í. um það, hvort læknirinn Jón K. Jóhannsson hafi með bréfi sínu til ráðherra, dagsettu 4. júni 1984, gerst brotlegur við siðareglur lækna. Jafn- framt var þess óskað, að nefndin taki til athugunar og afgreiðslu erindi Ólafs Jónssonar læknis, í bréfi til stjórnar L.Í., dagsettu 24. júlí 1984, en með bréfi þessu krafðist Ólafur Jónsson þess, að tekið verði með festu og myndugleik á skrifum Jóns K. Jóhannssonar og jafnframt að Jón K. Jóhannsson dragi framburð um afglöp og aðstoð við fjársvik til baka og biðjist afsökunar. Ofangreint bréf Jóns K. Jóhannssonar til heilbrigðisráðherra, dagsett 4. júní 1984, er svohljóðandi: »Sem öllum mun í fersku minni þá tilkynntu 28 flugmenn sig veika og mættu ekki til starfa þann 18. maí sl., en þeir hinir sömu flugmenn áttu þá í kjaradeilu við Flugleiðir h.f. Stjórn félagsins óskaði þá eftir að flug- mennirnir legðu fram læknisvottorð máli sínu til sönnunar. Átta læknisvottorð frá jafnmörgum lækn- um bárust mér, sem trúnaðarlækni Flugleiða h.f., til umsagnar og er skemmst frá að segja, að þeir læknar, sem hlut eiga að máli, gáfu aðspurðir óljós svör um hin meintu veikindi skjólstæðinga sinna. Að mínu áliti er hér um pöntuð tækifærisvottorð að ræða, sem ekki standast þær kröfur sem siðareglur lækna og hin almennu hegningarlög gera, þegar vættis er krafist.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.