Læknablaðið - 15.08.1986, Qupperneq 17
Asýran ber árangur!
Asýran (ranitidín) gegn sármyndun í maga og skeiiugöm
TÖFLUR; A 02 B A 02 Hver tafla inniheldur: Ranitidinum INN. klórið, sam-
svarandi Ranitidinum INN 150 mg. Eiginleikar: Lyfiðblokkar histamínviðtæki (H:)
og dregur þannig úr myndun saltsýru í maga. Eftir inntöku vara áhrif lyfsins a.m.k.
8 klst. Helmingunartími í blóði er 2-3 klst. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn
og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis (rcflux oesophagitis). Zollinger-Elhson
syndrome. Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Varnandi
meðferð viö endurteknu sári í skcifugörn. Til að hindra sármyndun í maga og
skeifugörn vegna strcitu hjá mikið veikum sjúklingum. Varnandi mcðfcrö viö
endurteknum blæðingum frá maga cða skeifugörn. Frábendingar: Ekki er ráðlegt
að gefa lyfið vanfærum cða mjólkandi konum nema brýn ástæða sé til. Ofnæmi fyrir
lyfinu. Aukaverkanir: Þreyta, höfuðverkur, svimi, niðurgangur cða hægðatregða.
Ofnæmisviðbrögð (ofnæmislost, útbrot, angioneurotiskt ödem, samdráttur í
berkjum) koma fyrir cinstaka sinnum. Fækkun á hvítum blóðkornum eða blóöflög-
um hafa sést noíckrum sinnum. Tímabundnar breytingar á lifrarstarfsemi. Eitur-
verkanir: Mjög lítil reynsla cr enn komin af eiturverkunum ranitidíns. Einkenni:
Hægur hjartsláttur og andþrengsli. Meðferð: Magatæming, lyfjakol. Rcyna má
atrópín við hægum hiartslætti. Að öðru leyti symtómatísk meðferð. Millivcrkanir:
Ekki þekktar. Varúð: Við nýrnabilun getur þurft að gefa lægri skammta lyfsins.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Við sársjúkdómi i skeifugörn og maga: 150 mg
tvisvar á dag eða 300 mg að kvöldi. Meðferðin á aö standa í a.m.k. 4 vikur, jafnvel
þótt einkenni hverfi fyrr. Við reflux oesophagitis: 150 mg tvisvar á dag í 8 vikur. Við
Zollinger-Ellison syndrome: í upphafi 150 mg þrisvar á dag. Ekki er mælt með
stærri dagskömmtum en 900 mg. Varnandi medferð við sári t skeifugörn: 150 mg
fyrir svefn. Lyfið er ekki œtlað börnum.
Pakkningar: Töflur 150 mg:
18 stk.; 60 stk.;
Ha. 120 stk- (Þynnup.
,-té
REVKJAVÍKURVEGI 78
222 HAFNARFJÖRÐUR