Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1986, Page 43

Læknablaðið - 15.08.1986, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ 179 Barnið dó innan sólarhrings frá þræðingu. Ekkert þessara dauðsfalla verður því rakið til hjartaþræðingarinnar sjálfrar. Fjórði einstaklingurinn var 44ra ára karl- maður innlagður á Borgarspítalann með hvildarverk í brjósti. Hann hafði árssögu um áreynslubundinn brjóstverk. Við þræðingu komu í ljós mikil þrengsli í vinstri höfuðstofni. Því voru gerðar fáar inn- spýtingar og rannsókn flýtt. Hálfri klukku- stund síðar fór sjúklingur í hjartastopp. Endurlífgun tókst ekki. Krufning staðfesti útbreidda æðakölkun með fersku drepi og einnig eldra hjartadrep. í vinstri höfuðstofni var blæðing í æðakölkunarskellu, ef til vill afleiðing hjartaþræðingarinnar. Þetta er eina dauðsfallið sem talist getur fylgikvilli hjartaþræðingarinnar, þ.e. 0,05%, sé miðað við heildarþræðingafjölda, en 0,08% sé miðað við kransæðaþræðingar eingöngu. Einn sjúklingur fékk hjartadrep. Var það 72ja ára gömul kona með óstöðuga hjarta- öng og sýndi þræðing þriggja æða krans- æðasjúkdóm og míturlokuleka. Eftir að rannsókn lauk, komu fram línuritsbreyting- ar og enzýmhækkanir sem samrýmdust litlu hjartadrepi. Fór hún í kransæðaaðgerð stuttu síðar og var við góða heilsu í marz 1985. Hjartarof kom fyrir hjá tveimur sjúkling- um. Annar var 82ja ára karlmaður, sem fór í hægri hjartaþræðingu vegna gruns um lungnarek. Æðaleggur rauf hægri slegil. Sjúklingur fékk alvarlegt blóðþrýstingsfall, en svaraði lyfjameðferð og útskrifaðist heill heilsu. Hinn var nýburi með viðvarandi fósturblóðrás sem áður er getið. Hjartastopp (asystolia) kom fyrir hjá 5 sjúklingum. Þrír þeirra létust eins og áður er getið. Sá fjórði var fimmtugur karlmaður er grunaður var um hjartavöðvasjúkdóm. Eftir rembing og Isuprelgjöf í þræðingu fékk hann hægan hjartslátt og síðan hjartastopp. End- urlífgun bar árangur. Fimmti sjúklingurinn var 31 árs gamall karlmaður með hjarta- vöðvasjúkdóm. í þræðingunni bognaði æðaleggurinn í ósæðarboganum. Sjúkling- urinn fór i hjartastopp, en svaraði lyfja- meðferð. Þræðingu var haldið áfram án frekari fylgikvilla. Sleglatif (ventriculer fibrillation) kom fyr- ir hjá einum sjúklingi, 42ja ára karlmanni. í þræðingunni kom rof í æðaþelhægri krans- æðar. Einni klukkustund siðar fór sjúkling- Number 100-! <. Month 1-12months 1-2years 3-4years 5-9years Fig. 2. Age distribution of patients younger than ten years undergoing cardiac catheterization. ,i <n Fig. 3. Annual number of cardiac catheterizations and sex distribution of the patients. Fig. 4. Annual number of patients catheterized by dif- ferent techniques: Cut down: •—• percutaneous: ■—• both techniques: o—□

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.