Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 45
Narox-E: Skæf í ætta átt Delta kynnir sýruhjúpaðar naproxentöflur sem innihalda 250,375 eða 500mg. NAROX OG NAROX-E. Hver tafla eða sýruhjúptafla inniheldur: Naproxenum INN 250 mg, 375 mg eða 500 mg. Eiginleikar: Naproxen er bólgueyðandi íyf með svipaða verkun og asetýlsalisýlsýra. Helstu áhrif eru bólgueyðandi-, verkjastilíandi- og hita- lækkandi verkun. Lyfið frásogast vel, hámarksblóðþéttni næst um 2 klst. eftir inntöku óhúðaðra taflna en um 4 klst. eftir inntöku sýruhjúptaflna. Helmingunartími í blóði er 10-17 klst. Um 95% lyfsins skilst út í þvagi. Próteinbinding í plasma er um 99%. Ábendingar: Iktsýki, slitgigt, hryggikt, þvagsýrugigt, festumcin. Bólga og verkir eftir áverka. Tíðaverkir, verkir frá legi vegna Iykkju eða annars, sem sett hefur verið í leg. Mígrenikast (aðeins fyrir Narox). Frábendingar: Magasár. Þungun. Aukaverkanir: Höfuðverkur, svefnleysi, óróleiki, þreyta, magaverkir, brjóstsviði, hægðatregða, niður- gangur, magablæðing (sjaldan). Útbrot geta komið fyrir. Berkjusamdráttur getur versnað hjá sjúklingum með astma. Varúð: Saga um sár í meltingarvegi, ofnæmi fyrir salisýlötum (t.d. útbrot og astma), nefslímubólgur. Milliverkanir: Milliverkun er við lyf, sem eru mikið próteinbundin í plasma, t.d. blóðþynningarlyf, sykursýkilyf. Eitur- verkanir: Eiturverkana hefur orðið vart hjá sjúklingi, sem tók inn 3,75 g en yfirleitt þarf stærri skammta til. Einkenni: Höfuðverkur, svimi, sljóleiki, suð fyrir eyrum, ógleði, uppköst, magaverkur. Hraður hjartsláttur, hjartsláttarköst. E.t.v. nýrnabilun, truflun á sýrujafnvægi (acidosa). Meðferð: Magatæming, lyfjakol. Sýrubindandi lyf eftir þörfum. Leiðrétting á sýrujafnvægi. Sýmptómatísk meðferð. NAROX. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er 250-500 mg i senn, mest þrisvar sinnum á sólarhring. Gigtsjúkdómar: 250-500 mg kvölds og niorgna, mest 1000 mg á sólarhring. Ef sjúklingur hefur mikil óþægindi á morgnana, getur verið æskilegt að gefa 500 mg að kvöldi. Sjúklingum, sem þurfa 1000 mg á sólar- hring, er best að gefa 500 mg kvölds og morgna. í sumum tilvikum er best að gefa 750- 1000 mg einu sinni á sólarhring. Míkrenikast: 750 mg í upphafi, þegar einkenni um mígrenikast byijar; síðan, ef þörf krefur, 250 mg. Taka má 250 mg að auki síðar, en sól- arhringsskammtur skal þó ekki fara yfir 1250 mg. Skammtastærðir handa bömum: Viðmiðunarskammtur er 10 mg/kg líkamsþunga á dag, en of lítil reynsla er enn af lyfinu hjá ungum börnum til að unnt sé að segja til um skammtastærðir hjá þeim. Börn eldri en 5 ára: 125 mg kvölds og morgna. Börn þyngri en 50 kg: Sömu skammtastærðir og hjá fullorðnum. Pakkningar: Töflur 250 mg: 20 stk.; 50 stk.: 100 stk. Töflur 375 mg: 20 stk.; 50 stk.; 100 stk. Töflur 500 mg: 20 stk.; 50 stk.; 100 stk. NAROX-E. Skammtastærðir handa fullorðnum: 500-1000 mg á dag. Við bráðri þvagsýrugigt 750 mg fyrst, síðan 250 mg á 8 klst. fresti. Skammtastærðir handa bömum: Þetta lyfjaform er ekki ætlað börnum. Pakkningar: Sýruhjúptöflur 250 mg: 20 stk.; 50 stk.: 100 stk. Sýruhjúptöflur 375 mg: 20 stk.; 50 stk.; 100 stk. Sýruhjúptöflur 500 mg: 20 stk.; 50 stk.; 100 stk. ajESÖNHSEWi

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.