Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 25

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 367-70 367 Gísli Vigfússon*, Paul Reinhold**), Josef Zander**) SVÆFINGAR SMÁBARNA MEÐ ALFENTANIL SAMANTEKT Ópiöt eru notuð í ríkum mæli við svæfingar. Á seinni árum hafa komið fram ný ópíat afbrigði, sem hafa minni hliðarverkanir en fyrri lyf. Gegnir þetta bæði um svæfinguna sjálfa og ekki síst eftir svæfingu. Minni hliðarverkanir stafa af styttri helmingunartíma og lægri dreifistuðli, sem gerir stjórnun í svæfingu auðveldari og uppvöknun öruggari og dvöl á gæsluskála þar með styttri. Eitt þessara lyfja er alfentaníl. Könnuð voru áhrif alfentaníls í svæfingu hjá 30 börnum undir eins árs aldri. Eftir innleiðslu og vöðvaslökun var gefið alfentaníl 20 pg/kg í æð sem byrjunarskammtur og síðan eftir þörfum sami skammtur þar til 10-15 mínútum fyrir áætluð aðgerðarlok. Vöðvaslökun var metin með taugaáreiti (TOF) og áhrif alfentaníls á öndunarþrýsting, púls og blóðþrýsting metin með og án vöðvaslökunar. Tíminn þar til börnin voru talin fullvöknuð var tekinn og PcC02 var mælt á gæsluskála. Ekki kom til neinna vandamála við innleiðslu né uppvöknun. Meðaltími þar til börnin opnuðu augun og fóru að hreyfa sig var 1,8 mínútur. Engar verulegar sveiflur urðu á púls og blóðþrýstingi í aðgerð. Meðalöndunarmagn hélst nær óbreytt og öndunarvegaþrýstingur jókst óverulega er vöðvaslökun minnkaði. Rannsókn þessi sýnir að alfentaníl er valkostur við svæfingu smábarna þegar notkun innöndunarlyfja er talin óæskileg. INNGANGUR Svæfingar smábarna hafa fram að þessu nær einskorðast við notkun svæfingalyfja til innöndunar (inhalations) svæfingar. Þetta stafar fyrst og fremst af áralangri reynslu í notkun þeirra svo og hinu að talið hefur verið að smábörn séu mun næmari fyrir öndunarletjandi áhrifum sterkra verkjalyfja en fullorðnir (1). Innöndunarsvæfingar eru þó ekki alltaf heppilegar og geta í vissum tilvikum beinlínis Barst 15/07/1988. Samþykkt 26/08/1988. *) Landspítalinn, svæfingadeild, **) Svæfingadeild, Háskólasjúkrahússins Múnster í Vestur Þýskalandi. verið varasamar eða jafnvel hættulegar. Má þar nefna sjúklinga, sem útsettir eru fyrir illkynja háhita (malignant hyperthermia), hafa ofnæmi fyrir innöndunarsvæfingalyfjum (hiti, eosonophilia, hækkaðir lifrarhvatar eftir fyrri svæfingar) eða eru næmir fyrir hjartabælandi áhrifum lyfjanna. Alfentanil er ópíumsamband, sem kom fyrst á markað í Vestur-Evropu árið 1983. Lyfið er skylt öðru ópíumsambandi, fentanýli, en hefur ýmsa eiginleika, umfram það. Það hefur um 1/7 af styrk fentanýls, en mun styttri helmingunartíma, veikari viðtækjabindingu og lægri dreifingarstuðul (2-4). Þetta gerir lyfið mun meðfærilegra við svæfingar og leiðir til skjótari vöknunar að svæfingu lokinni og minni hættu á síðkomnum öndunarletjandi áhrifum. Lyfið hefur verið notað með góðum árangri við svæfingar fullorðinna (5-7) en reynslan af því hjá smábörnum er af skornum skammti. í klinískri rannsókn voru könnuð áhrif svæfinga með alfentanili, vercuronium og glaðlofti/súrefni hjá börnum undir eins árs aldri. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐ Rannsóknin náði til 30 barna undir eins árs aldri, meðalaldur 6,2 ±4,1 mánuðir og meðalþyngd 6,65 ±2,54 kg. Sjúklingar tilheyrðu ASA-áhættuhóp 1 og 2 (áhættuflokkun bandaríska svæfingalæknafélagsins, flokkast frá 1-5) og áttu að ganga undir aðgerð á nára eða spangarsvæði (Tafla I). Að undangenginni lyfjaforgjöf með klórprotixen 1 mg/kg í vöðva var svæfing innleidd með thiopental 5mg/kg í æð, vöðvaslakað með vecuronium 100 pg/kg og barkaslanga þrædd. Öndun var stjórnað og glaðloft og súrefni gefið í Tafla I. Sjúklingaval og aðgerðarform. Fjöldi.................. 30 Aldur .................. 6,2 ±4,1 mánuðir Þyngd................... 6,6 ±2,5 kg ASA-áhættuflokkur....... 1 og 2 Aðgerð.................. Nára og spangarsvæði

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.