Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.11.1988, Blaðsíða 22
364 LÆKNABLAÐIÐ Table III. Percentage age distribution of glaucoma patients in Iceland 1892-1987. Outpatient Prescription Outpatient Clinic study Clinic Björnsson Sveinsson Skúlason Ólafsson Agegroups 1987 1982(1) 1978 (2) 1963 (3) 1956(4) 1933 (8) 1892-09(5) <50................... 1.5 2.6 2.3 2.2 1.8 2.4 4.1 50-59 ................ 5.2 6.3 7.2 13 10.1 16.1 23.7 60-69................. 16.8 22.5 26.9 43.2 34.6 48 47.8 70-79 ................ 37.6 39 38 36.5 41.1 30 23 80+................... 38.9 29.6 25.6 5.1 12.4 3.5 1.4 100 100 100 100 100 100 100 elstu aldursflokkum, heldur að bilið sé að minnka. Skýring á þessum minnkandi algengismun kynja gæti verið sú að umhverfisáhrif hafi breytt gangi sjúkdómsins. Á síðustu áratugum hafa störf karla hér á landi breyst mjög mikið vegna þeirrar byltingar í atvinnuháttum, sem átt hefur sér stað upp úr síðustu heimsstyrjöld og eru nú störf karla og kvenna ekki eins frábrugðin og áður. Blindukannanir 1940 og 1950 leiddu í ljós að mun fleiri karlar en konur blinduðust af gláku (8, 10). Eins og sjá má af þessari könnun er sjónskerðing sjúklinga með hægfara gláku af ýmsum orsökum. Af 470 sjónskertum einstaklingum á öðru eða báðum augum hafa 248 skerta sjón vegna glákuskemmda eða rúmlega helmingur sjónskertra. Þeir sem teljast blindir á báðum augum eru 33 að tölu (4,1%) en af heildinni er glákan aðalorsök hjá 27 (3,3%). Verulega skert sjón af völdum gláku er algengari meðal karla en kvenna og þá einkum í elstu aldursflokkum. Besti mælikvarði á starfsgetu glákusjúkra augna er könnun á sjónsviði. Um 60% sjúklinga eru komnir með mælanlega sjónsviðsskerðingu á annað eða bæði augu á Per thousand * Present study « Study 1982 Fig. 7. Prevalence of primary open angle glaucoma in Reykjavlk area, Iceland. Present study 1987 and study 1982, per thousand inhabitants. mismunandi stigum, allt frá blindum bletti á Bjerrum svæði til alblindu. Hversu mikill hluti sjúklinga með þekkta hægfara gláku hér á landi má ætla að sé í meðferð og eftirliti á Göngudeild augndeildar? Með því að bera saman fjölda þeirra, sem notuðu glákulyf hér á landi við Lyfseðlakönnunina 1982 má gera sér nokkra grein fyrir því. Fjöldi einstaklinga sem fjallað var um í þeirri könnun er 1916. Eru göngudeildarsjúklingarnir því 42,2% af þeim fjölda. Þar sem meirihluti sjúklinga í þessari könnun er búsettur á höfuðborgarsvæðinu (um 70%) er með nokkurri nákvæmni unnt að meta hve mikill hluti göngudeildarsjúklinga er af heildarfjölda glákusjúklinga á þessu svæði með því að bera saman algengi á höfuðborgarsvæði í aldursflokkum í báðum könnunum, samanber mynd 7. Svipað hlutfall er í öllum aldursflokkum. Af framansögðu má ætla að glákusjúklingar á göngudeild augndeildar Landakotsspítala endurspegli almennan augnhag glákusjúklinga á landinu. Ættu því, miðað við síðustu glákukönnun hér á landi (1), um 600 einstaklingar að vera meira eða minna sjónskertir á öðru eða báðum augum af völdum gláku. Þar af um 40 sem teljast blindir. SUMMARY The eye status of primary open angle glaucoma (POAG) patients in June 1987 at the Glaucoma Clinic, St. Josep’s Hospital, Reykjavík, Iceland. This article is a review of 809 (409 males, 400 females) POAG (primary open angle glaucoma) patients attending the Glaucoma Clinic, St. Joseph’s Hospital, Reykjavík, Iceland. Only 12 were under the age of 50 and 75% were 70 years and older. About 70% live in the Capital area. The sex distribution is almost even, however the prevalence is higher among males than females in all age groups. The POAG cases attending the Glaucoma Clinic is estemated to be around 40% of known (diagnosed) glaucoma cases in the country.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.