Læknablaðið - 15.03.1989, Qupperneq 6
80
LÆKNABLAÐIÐ
á Borgarspítala og 18.3. 1987 15 sýni úr
sturtuhausum og hitaböðum á Landakotsspítala.
Á hverjum stað voru teknir um það bil 100 ml af
vatni í dauðhreinsuð plastílát og sett í hitabað við
50°C í hálfa til eina klukkustund til þess að drepa
bakteríur, sem ekki eru eins hitaþolnar og
Legionella. Úr hverju íláti var síðan sáð með 10 pl
talningarlykkju á BCYE alfa agar (»Buffered
Charcoal Yeast Extract« bætt með
alfaketoglutarate, Oxoid CM655 + SR110) og 1
ml af sýninu settur á sama æti, sem í var bætt
sýklalyfjum (Oxoid SRlll eða SR 118) til að
halda niðri vexti annarra baktería. Afgangurinn
af vatninu var síaður gegnum 0,2 gm síu frá
Millipore, sem síðan var hvolft á BCYE alfa-æti
með sýklalyfjum. Sían var fjarlægð eftir 18-20
klukkustundir.
Skálarnar voru síðan hafðar í hitaskáp við 36°C
og þeim tryggður nægur raki i fjóra sólarhringa
áður en lesið var af þeim. Bakteríuþyrpingum
með dæmigerðu útliti og vægt jákvæðri
súrvatnskljúfssvörun (catalasa), var umsáð á
venjulegan blóðagar og BCYE alfa æti. Kæmi
enginn vöxtur fram á blóðagarnum var greiningin
endanlega staðfest með ónæmisflúrljómun.
NIÐURSTÖÐUR
Útbreiðsla Legionella spp. á Landspítala. Fyrstu
10 sýnin (1.000 ml hvert) voru tekin úr
rakagjöfum loftræstikerfa spítalans. Öll reyndust
neikvæð nema sýni úr rakagjafa fyrir
loftræstikerfi hluta röntgendeildar, sem er í hinni
nýju W-álmu. Þar óx Legionella upp af síu.
Ræktun mánuði síðar var neikvæð. Sýni úr
rakagjafa fyrir loftræstikerfi Vökudeildar, sem
hýsti L. pneumophila 1985, var neikvætt.
Sjö sýni frá vistarverum starfsfólks í húsi
kvennadeildar, úr sturtuhausum og handlaugum
voru neikvæð.
Þann 24.9. 1986 voru tekin 11 sýni úr 8
hitaböðum á rannsóknarstofum á Landspítala
(Rannsókn 1, 2, 3 og 6). Úr tveim hitaböðum
ræktaðist L. pneumophila seroptypa 1, 20 til 30
þúsund þyrpingar úr ml, en hin böðin voru öll
neikvæð. Þann 7.10. 1986 voru aftur tekin sýni og
var niðurstaðan sú sama.
í kjölfar þessa voru hitaböðin hreinsuð og
ræktanir endurteknar. Reyndust þá bæði
neikvæð. Ekki ræktaðist Legionella úr þrem
hitaböðum á sýklarannsóknadeild Landspítala.
Á gangi 14D eru herbergi aðstoðarlækna,
skrifstofur lækna og fyrirlestrasalur (Loftsalir).
Ræktaðist L. pneumophila úr öllum þeim 17
sýnum sem tekin voru þar úr krönum og
sturtuhausum. Þegar skrúfað var frá sturtum og
tekin vatnssýni með hálfrar mínútu millibili varð
niðurstaðan eins og sést í töflum 1 (Table I) og II
(Table II). Var bakterían mjög útbreidd á þessum
stöðum.
Til að ganga úr skugga um hvort bakterían kæmi
úr heita eða kalda vatninu voru tekin sýni úr
inntökum vaska fyrir heita vatnið annars vegar og
kalda vatnið hins vegar. Niðurstöður má sjá í
töflu III (Table III).
Þrisvar voru tekin sýni á blóðskilunardeild
Landspítala, 13.10., 3.11. og 1.12. 1986.
Vatnssýni voru tekin úr þeim vélum, sem voru í
notkun hverju sinni. Tekið var vatn, sem var inni
á vélunum og ræktaðist Legionella úr sex af átta
vélum. Einnig ræktaðist L. pneumophila úr
vatnsinntaki fyrir blóðskilunardeildina báðum
megin við síur, sem voru á vatnsinntakinu. Vatn
úr handlaugarkrana á blóðskilunardeildinni
reyndist einnig jákvætt.
Table I. The Nationa! University Hospitat
(Landspltalinn): Serial cultures from showers. House
staff rooms 1 (cold) and 3 (hot).
10 |il No. of colonies 1 ml filter
hot cold hot cold hot cold
After 0 min. ...35 0 25
After Vi min. ... 0 0 3 5
After 1 min. ... 0 0 13 7
After 1 /i min. ... 0 0 7 1
After 2 min. ... 1 0 5 0
After 2'A min. ... 0 0 3 0 pos.
Table II. The National University Hospital
(Landspítalinn): Serial cultures from showers. House
staff rooms 1 (hot) and 3 (cold).
No. of
colonies
10 ul 1 ml filter
hot cold hot cold hot cold
After 0 min. .. .. 55 4 nc*) nc nc nc
After Vi min. .. .. 1 0 30 4 nc nc
After 1 min. .. .. 0 0 14 8 nc nc
After 1/2 min. .. .. 0 0 8 0 -100 50
After 2 min. .. .. 0 0 5 0 -100 17
After 2/i min. .. .. 0 0 0 1 40 40
After 3 min. .. .. 0 0 2 1 42 50
After 3'/2 min. .. .. 0 0 2 0 60 30
After 4 min. .. .. 0 0 1 1 54 4
After 4 '/2 min. .. .. 0 0 0 0 7 7
After 5 min. .. .. 0 0 2 0 32 16
*) too numerous to count.