Læknablaðið - 15.03.1989, Page 48
114
LÆKNABLAÐIÐ
einangrun og hreinsun enzýma og annarra
viðkvæmra lífefna og nefnist frostþurrkun
(lyofilization). Með því að beita þessari nýju
tækni heppnaðist Chain og samverkamönnum að
einangra penicillín og hreinsa í þeim mæli, að það
var þúsund sinnum virkara gegn næmum
bakteríum en það penicillín, sem Fleming vann
með. Florey og aðrir í hópnum, sem nú var saman
kominn í Oxford (oft kallaður
»Oxfordhópurinn«), önnuðust
bakteríufræðilegar rannsóknir og aðrar
líffræðilegar rannsóknir á penicillíni.
í fyrstu ritgerð þeirra félaga, er nefnist: Penicillin
as a chemotherapeutic agent og birtist í Lancet 24.
ágúst 1940, er fyrst vikið að hreinsun efnisins og
virkni. Þar segir orðrétt: »During the last year
methods have been devised here for obtaining a
considerable yield of penicillin, and for rapid
assay of its inhibitory power. From the culture
medium a brown powder has been obtained which
is freely soluble in water. It and its solution are
stable for a considerable time and though it is not
a pure substance, its antibacterial activity is very
great» (44). - í ritgerðinni eru raktar klassískar
tilraunir með mýs, sem sýktar voru með þremur
tegundum baktería (Streptococcus pyogenes,
Staphylococcus aureus eða Clostridium septicum
(septique)) og hvernig penicillín bjargaði þeimfrá
bráðum dauða. Af þessum tilraunum var sú
tilraun ef til vill athyglisverðust, sem gerð var 1.
júlí sumarið 1940 (45).
Einmitt um þetta leyti var gengi Breta í
heimsstyrjöldinni síðari um það bil eins slæmt og
verða mátti. Vonir um stuðning frá bresku
ríkisstjórninni eða frá breskum lyfjaverksmiðjum
til þess að framleiða penicillín urðu því að engu.
Varð því ekki annað úrræða en halda áfram
vinnunni í Oxford með þeirri aðstöðu, mannafla
og fjármagni, sem þar var (46).
Tólfta febrúar 1941 var penicillín reynt í fyrsta
sinn við alvarlegt sjúkdómstilfelli sem frægt er.
Sjúklingurinn var lögreglumaður í Oxford, sem
kominn var að dauða af völdum
stafýlókokkablóðeitrunar. Súlfónamíð höfðu
verið reynd, en án árangurs. Sjúklingurinn fékk
penicillin í æð auk blóðgjafar. Allt virtist benda
til þess, að manninum yrði bjargað. Hann fékk
allt það penicillín, sem til var, en það hrökk ekki
til og hann dó. Skömmu síðar, þegar meira
penicillín hafði verið framleitt, var það reynt í
þremur alvarlegum sjúkdómstilfellum og sannaði
þar ágæti sitt (47).
Mynd 13 a og b. Myndin er af penicillíni í hettugiasi í vörslu Rannsóknastofu í lyfjafrœði. Glasið er frá fyrstu árum
penicillínframleiðslu. Mynd a sýnir forhlið glassins. íþví voru 100.000 svokallaðar Oxford-einingar af penicillíni og
það hefur átt að nota fyrir 10.1.1947. Framleiðandi var Parke, Davis & Co. í Detroit í Bandarikjunum. Mynd b sýnir,
að penicillín var í þá daga óhreint efni (»brown powder«) eins og Florey et. al. skrifuðu.