Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1991, Page 11

Læknablaðið - 15.11.1991, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 335-6. 335 NABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafclag íslands og Læknaíclag Rcykjavikur 77. ARG. - NOVEMBER 1991 NAUÐSYN SLYSAVARNA Þegar undirritaður samdi frumvarp að lögum um Slysavamaskóla sjómanna var í þeim ákvæði um að enginn yrði lögskráður á íslenskt skip, nema að hafa lokið »námi« frá skólanum. Svo ná mætti samkomulagi um frumvarpið og gera það að lögum, varð að fella þetta ákvæði út. Þar komu við sögu hagsmunir, sem ég tel að þjóni ekki öryggi sjómanna. Þessa niðurstöðu taldi ég afleitari fyrir þær sakir, að nú er almennt talið að nýliðafræðsla um borð í skipum sé of lítil, í raun hvergi fullnægjandi. Og ástæðan er aukið vinnuálag sjómanna, minni tími og færri tækifæri til að leiðbeina nýliðum. Þetta kann að vera meginástæða margra slysa. Líklegt má telja, að höfundi þessa leiðara hafi verið ætlað það hlutverk að draga ályktanir af meginniðurstöðu könnunar þeirra Hólmfríðar Gunnarsdóttur og Vilhjálms Rafnssonar á dauðaslysum á sjó (drukknanir sjómanna) á árabilinu 1966 til 1986. Könnunin/rannsóknin birtist í þessu blaði og þar segir meðal annars orðrétt: »Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að þrátt fyrir átak í slysavömum hefur dauðaslysum á sjó, þar á meðal drukknunum, ekki fækkað svo óyggjandi sé.« Þessi staðhæfing hlýtur að valda starfsmönnum Slysavamafélags íslands og slysavamafólki öllu talsverðu hugarangri. Getur verið, að 60 ára barátta fyrir bættum slysavömum hafi ekki borið árangur?1* Það er ekki viðunandi að draga slíka ályktun, en niðurstaðan vekur hins vegar fjölmargar spumingar. Það má til dæmis velta því fyrir sér hvort ný tækni, öflugri vélar, auknar kröfur um afköst, gífurlegt vinnuálag og núverandi fiskveiðistefna hafi aukið hættu á slysum. Eða getur verið, að nauðsynlegar slysavamir hafi að einhverju leyti setið á hakanum af því að þær kosta peninga? Eru slysin kannski fómarkostnaður kröfunnar um aukna þjóðarframleiðslu og meiri þjóðartekjur? '^Þess má geta, aö Slysavarnaskóli sjómanna tók til starfa áriö 1985 og áhrifa hans gætir ekki í títtnefndri rannsókn. Þá ber aö hafa í huga, aö sóknarmynstur íslenska flotans hefur breyst. Dregiö hefur úr netaveiöum en togveiðar aukist, og þaö er einmitt um borö í togveiðiskipunum, sem flest slysin veröa. Tækjabúnaöur vinnsluskipanna veldur þvi einnig, aö slysahættan hefur aukist. Kannanir sýna, að yngstu aldurshópamir eru í langmestri hættu um borð í skipum. Samvinna hefur nú tekist með öryggisfræðslunefnd sjómanna og Félagsmálaráðuneytinu um nýliðafræðslu og má vænta góðs árangurs á þeim vettvangi. Rannsóknin, sem er tilefni þessa leiðara, hefur áður kallað fram nokkur skoðanaskipti. Bent hefur verið á, að niðurstaðan stangist á við rannsóknir, sem gerðar hafa verið hjá Siglingamálastofnun ríkisins. Starfsmenn Slysavamafélagsins telja einnig, að niðurstaðan komi ekki heim og saman við tölur og upplýsingar, sem þeir hafa undir höndum. Þannig segir Kristinn Ingólfsson, starfsmaður Siglingamálastofnunar, í grein í Morgunblaðinu 20. ágúst síðastliðinn: »Sé tekið tímabilið 1971-1974 eru dauðaslys á tíu þúsund ársverk 41, en aftur á móti fyrir tímabilið 1984-1989 em dauðaslysin komin niður í 12 á tíu þúsund ársverk. Því má segja með sanni að dauðaslysum til sjós hafi fækkað vegna aukinnar sjóhæfni skipa, aukins öryggisbúnaðar, fræðslu og að björgunarsveitir, í landinu hafa stóreflst.« Það er mikill munur á þessum tölum og rannsókn þeirra Hólmfríðar og Vilhjálms. Skýringamar má kannski finna í aðferðafræðinni. En það er ekki tilefni til að gera ágreining um það hvort dauðaslysum á sjó hefur fjölgað eða fækkað. Það er hins vegar tilefni til að hvetja til óumdeilanlegrar skráningar á sjóslysum.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.