Læknablaðið - 15.11.1991, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 363-6.
363
\ z'
Halldór Baldursson
TÓMSTUNDAGAMAN II:
AÐ GERA UPP FALLBYSSUR
OG SKJÓTA AF ÞEIM
INNGANGUR
Læknum er hætt við að einangrast og verða
fagidíótar. Læknanámið er erfitt og í raun
er þess krafist, að menn séu vakandi og
sofandi með hugann allan við námið, enda
er námsefnið slíkt, að tímar sólarhringsins
eru varla nógu margir. Eftir læknapróf tekur
við kandidatstíminn og oftast sémám með
einbeitingu að faginu og skerðingu á öðrum
lestri, jafnvel hugsun.
Læknum er nauðsynlegt að hafa eitthvert
tómstundagaman, sem ólíkast starfinu. »A
change is as good as a rest«.
Sumir safna frímerkjum, iðka tónlist, mála,
leika golf eða veiða lax.
Allt er þetta fánýtt í augum þeirra, sem ekki
hafa áhugann (eða bakteríuna).
Frímerki - hvað eru þau nema mislitir
pappírssneplar, sumir með lími og sumir ekki?
Hvers virði er tónlist hinum laglausu?
Málverk eru falleg eða ljót í augum annarra,
án þess að það endilega auki eða skerði
sköpunargleði listamannsins.
Þurfa menn að kaupa kylfusett, borga árgjald í
golfklúbbi og elta síðan litla hvíta kúlu út um
grundir og hóla? Væri ekki nær að fara bara í
gönguferð?
Laxinn væri yfirleitt ódýrari úr fiskbúð en með
því að kaupa veiðileyfi.
Nei - vitrænar skýringar á ágæti tiltekins
tómstundagamans eru í besta lagi vafasamar.
Kjami málsins er, að til að hlaða rafhlöðu
sálarinnar þurfa menn að komast burt frá því,
sem þeir starfa venjulega við.
Mynd. 1. Fallbyssuhlaup sem bryggjupolli í
Akureyrarhöfn.
FUNDIN FALLBYSSUHLAUP
Hér verður lítillega gerð grein fyrir sérstöku
tómstundagamni mínu, sem er að gera upp
gamlar framhlaðningsfallbyssur og skjóta af
þeim.
Árið 1981 kom ég til starfa á Akureyri
og veitti því fljótlega athygli, að nokkrir
bryggjupollar í Akureyrarhöfn voru
óvenjulegir að gerð. Pollamir virtust vera
holir og auk þess var útstæður hluti á efri
brún með holu í og skrúfugangi í holunni