Læknablaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 46
366
LÆKNABLAÐIÐ
\
1990, var um leið verið að skjóta til heiðurs
brúðhjónum, sem verið var að gefa saman í
kirkjunni hjá Minjasafninu.
Síðara fallbyssuhlaupið var komið á vagn og
prófað í ágústlok 1990 (mynd 4).
Aðeins hefur verið hleypt af púðurskotum
(lausum skotum), alls 26 skotum, að
meðtöldum sex skotum 17. júní 1991. Þá
voru í fyrsta sinn báðar fallbyssumar í notkun
samtímis.
Lögreglan á Akureyri hefur aðstoðað við að
halda áhorfendum í hæfilegri fjarlægð frá
skotstað.
Með sérstöku leyfi dómsmálaráðuneytisins var
mér veitt skotvopnaleyfi fyrir fallbyssunum.
Það leyfi mun vera hið fyrsta sinnar tegundar
á Islandi.
VARNAÐARORÐ
Hér verður ekki lýst tækni við að hlaða
eða skjóta af framhlaðningsfallbyssum. Ef
einhverjir lesendur ætla að fara að stunda
þessa iðju, er þeim bent á að hafa samband
við greinarhöfund eða aðra, sem reynslu hafa,
en þreifa sig ekki áfram með brjóstvitinu einu.
Svartpúður er mun vandmeðfamara en til
dæmis dýnamít. Ef ekki er gætt fyllstu
varúðar, má búast við alvarlegum atburðum.
Jón Indíafari slasaðist illa og varð örkumla
af því að glóð leyndist í hlaupi byssu, sem
hann var að hlaða (3). Þegar Kristján IX. var
í Reykjavík 1874, var skotið af fallbyssu við
hátíðahöldin í Öskjuhlíð. Þar tókst svo illa til,
að tveir menn slösuðust og misstu báðir hönd
(4).
HVERSVEGNA?
Hvers vegna leiðist miðaldra læknir út í
tómstundagaman eins og hér er lýst?
Svörin gætu orðið margvísleg, til dæmis:
* Sögulegur áhugi, áhugi á fomininjum.
* Dulin ofbeldishneigð, sem fær útrás í að
skjóta af fallbyssum í þéttbýli.
HVERS VEGNA EKKI?
Skýringar á tómstundagamni eru marklausar.
Mér finnst gaman að þessu fallbyssudundi og
Akureyringum hefur fundist fallbyssuskot á
tyllidögum góð nýbreytni í bæjarlífinu.
Ef menn eru hræddir við að vera taldir
sérvitringar, er margt að varast. Menn ættu til
dæmis ekki að skjóta af fallbyssum í þéttbýli
að viðstöddum fjölda manns og fulltrúum
fjölmiðla.
En líklegt er, að sérvitringamir skemmti sér
oft vel, þar sem hinir fara mikils á mis.
HEIMILDIR
1. Fréttabréf lækna 1989; 7(10); 17.
2. Nordisk Medicin 1989; 104 (10); 263.
3. Reisubók Jóns Indíafara, 2.bindi. Reykjavík:
Bókfellsútgáfan, 1946: 183.
4. Þjóðólfur 1874 12. ágúst; 26: 176.