Læknablaðið - 15.11.1996, Page 66
808
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Frá stjórn Læknafélags íslands
Orðsending til lækna
Um hóptryggingu lækna
Stjórn Læknafélags íslands
vekur athygli á því að góð þátt-
taka er í hóptryggingu lækna og
frá því að Læknafélag íslands
gerði nýjan samning við Sam-
einaða líftryggingafélagið fyrir
rúmu ári hafa um 280 læknar
sótt um og fengið aðild að trygg-
ingunni. Því til viðbótar eru 40
læknar í eldri hóptryggingu
lækna. Að okkar mati staðfestir
þessi mikla þátttaka að það hafi
verið rétt ákvörðun að leita að
nýju tilboða í vátryggingar-
vernd fyrir félagsmenn. Jafn-
framt að verndin sé þannig upp-
byggð að hún mæti þörfum
flestra og dæmin sýna að ið-
gjaldið er mjög hagstætt í sam-
anburði við samskonar trygg-
ingar fyrir einstaklinga hjá vá-
tryggingarfélögunum.
Á skrifstofu Læknafélags Is-
lands og hjá Sameinaða líftrygg-
ingafélaginu hefur orðið vart
aukinna fyrirspurna um hóp-
trygginguna á síðustu vikum og
mánuðum. Við viljum því nota
hér tækifærið og rifja upp í
stuttu máli helstu atriði hóp-
tryggingarinnar en viljum jafn-
framt hvetja félagsmenn til þess
að leita sér nánari upplýsinga
hjá Sameinaða líftryggingafé-
laginu (s. 569 2500) eða á skrif-
stofu okkar.
Hóptrygging Læknafélags
íslands
Grunntryggingarnar tvær
mynda lágmarksvernd í hóp-
tryggingunni:
a) Líftrygging, að fjárhæð kr.
7.017.000, sem lækkar um
5% á ári frá 50 ára aldri. Úr
líftryggingu greiðast dánar-
bætur með eingreiðslu við
andlát til þess eða þeirra sem
tryggður tilnefnir í umsókn
sinni.
b) Sjúkra- og slysatrygging,
sem er tvískipt. Annars veg-
ar er um að ræða vikulegar
bætur (dagpeninga) vegna
tímabundinnar örorku og
hins vegar eingreiðslu bóta
vegna varanlegrar örorku í
kjölfar slyss eða sjúkdóms.
Vátryggingarfjárhæð dag-
peninga er kr. 51.596 á viku,
sem lækkar um 7% á ári frá
60 ára aldri. Boðið er upp á
val í biðtíma, fjórar, 12 eða
36 vikur, en það er sá tími
sem líður frá því tryggður
verður óvinnufær vegna
slyss eða sjúkdóms þar til
bótatímabil hefst. Bótatíma-
bil getur lengst orðið þrjú ár
að frádregnum biðtíma.
Vegna varanlegrar örorku er
vátryggingarfjárhæðin kr.
7.842.500 miðað við algjöra ör-
orku og fer hún lækkandi um
5% á ári frá 50 ára aldri.
Til viðbótar grunntrygging-
um býðst afkomutrygging fyrir
lækna og líftrygging fyrir maka
þeirra lækna sem aðild eiga að
hóptryggingunni. Úr afkomu-
tryggingu greiðast bætur til þess
sem tryggður er á meðan hann
er óvinnufær vegna sjúkdóms
eða slyss. Bótatími getur orðið
mjög langur, það er til 60 eða 65
ára aldurs, eftir vali við trygg-
ingartöku.
Fulltrúar úr stjórn Læknafé-
lags íslands hafa fundað með
fulltrúum Sameinaða líftrygg-
ingafélagsins og sýnist full
ástæða til þess vegna fjölda
fyrirspurna að samband verði
að nýju haft við lækna um það
hvort þeir vilja gerast aðilar að
hóptryggingunni. Stjórn
Læknafélags íslands telur að
hún geti mjög mælt með því við
lækna og hvetur þá til að skoða
kosti þessarar hóptryggingar
mjög gaumgæfilega og hefur
farið þess á leit við fulltrúa Sam-
einaða líftryggingafélagsins að
þeir hafi samband við lækna.
Þrátt fyrir mjög góða þátttöku
þyrftu þó fleiri læknar að vera
aðilar að hóptryggingunni
þannig að iðgjaldakjör væru þau
hagstæðustu sem upp á er boð-
ið.