Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Qupperneq 4
mánudagur 7. maí 20074 Fréttir DV
Áhugamaður um
steina gripinn
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu handtók tvo menn
aðfaranótt föstudags en grunur
leikur á að þeir hafi brotist inn
í tvo bíla. Annar maðurinn var
grímuklæddur þegar lögreglu
bar að garði. Hún spurði þá
hvað þeim gengi til og svaraði
þá sá grímuklæddi að hann væri
áhugamaður um steina. Hann
hélt því fram að hann væri að
skoða steinana á bílastæðinu.
Lögreglunni þótti sagan heldur
ótrúverðug og handtók báða
mennina. Þeir voru færðir í
fangageymslur.
Fíkniefnamis-
ferli í borginni
Fimm karlmenn og ein
kona voru handtekin í höf-
uðborginni fyrir helgi vegna
fíkniefna sem fundust í fórum
þeirra. Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu gerði húsleitir
á tveimur heimilum og fannst
þó nokkuð af amfetamíni á
þeim báðum. Í annarri íbúð-
inni fannst einnig fjöldi af
skammbyssuskotum. Þrír af
mönnunum voru handteknir
í miðborginni. Einn var með
100 grömm af hassi á sér og
70 skammta af LSD.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur hrundi niður stiga á 1. maí:
Þakkar Guði að ekki fór verr
„Ég er svona að skríða saman og
er enn hálfasnalegur eftir að hafa
fallið marga metra niður. Ég rotað-
ist við höggið og vaknaði með lög-
reglu og sjúkraliða stumrandi yfir
mér nokkru síðar. Ég er bara mjög
heppinn að ekki fór verr og þakka
Guði fyrir það,“ segir Aðalsteinn
Baldursson, formaður Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur.
Aðalsteinn slasaðist illa á verka-
lýðsdaginn 1. maí sem haldinn var
hátíðlegur í íþróttahúsinu á Húsa-
vík. Að loknum fjölmennum hátíð-
arhöldum var hann að ganga frá
með starfsmönnum verkalýðsfé-
lagsins og var að taka niður veggja-
skraut með þeim afleiðingum að
hann datt niður úr stiganum. Að-
alsteinn féll fjóra metra niður og
skall harkalega í gólfið. Hann hlaut
handleggsbrot og skurði ásamt því
að missa meðvitund við höggið.
Sauma þurfti níu spor í andlitið á
Aðalsteini. Fyrir utan óhappið er
hann ánægður með hátíðarhöldin.
„Við leggjum mikið upp úr því að
hafa létta og skemmtilega dagskrá. Í
ár tóku 700 manns þátt í þessu með
okkur. Miðað við höfðatölu er okkar
hátíð án efa sú fjölmennasta á land-
inu,“ segir Aðalsteinn. trausti@dv.is
Lurkum laminn aðalsteinn
handleggsbrotnaði og hlaut djúpan
skurð í andliti við fallið.
Hópur fjármagnseigenda fer stækkandi með hverju árinu. Þeir greiða fjármagns-
tekjuskatt sem rennur óskiptur til ríksins og sveitarfélögin fá ekki útsvar fyrir vikið.
Sveitarfélögin halda úti mikilvægri grunnþjónustu fyrir alla íbúana.
Sveitarfélög víða um land verða af
gríðarlegum tekjum vegna sívaxandi
hóps þeirra sem greiða fjármagns-
tekjuskatt af tekjum sínum. Fyrir vik-
ið missa sveitarfélögin útsvar vegna
teknanna. Fyrir þremur árum áætl-
aði Samband íslenskra sveitarfélaga
tekjutap sveitarfélaganna og gerði
þá ráð fyrir tapi upp á milljarð. Ljóst
er að sú upphæð hefur hækkað sök-
um þess að hópur fjármagnseigenda
hefur vaxið jafnt og þétt eftir lög um
einkahlutafélög og lækkaða skatta.
Á síðustu fjórum árum hefur hóp-
ur fjármagnseigenda stækkað sífellt
og nam fjölgunin nærri 10 prósent-
um milli áranna 2005 og 2006. Sam-
kvæmt upplýsingum frá ríkisskatt-
stjóra greiða tæplega 85 þúsund
einstaklingar fjármagnstekjuskatt af
hluta tekna sinna. Það er tæpur þriðj-
ungur af öllum skattgreiðendum á
skrá stofnunarinnar, 16 ára og eldri.
Af þeim sem greiða fjármagnstekju-
skatt eru í kringum 2.200 sem gefa
eingöngu upp fjármagnstekjur.
Finna verulega fyrir þessu
Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri
á hagsviði Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, segir ljóst að tekjutap sveit-
arfélaganna hefur aukist verulega
síðustu árin. „Það er erfitt að henda
reiður á nákvæmlega hversu mik-
ið tapið er. Það er alveg á hreinu að
sú upphæð hefur aukist verulega
frá okkar nálgun með milljarðinn.
Menn finna mjög greinilega fyrir
þessu í sveitarfélögunum úti á landi
þar sem nánast allir eru komnir yfir
í einkahlutafélög, sjómenn og smá-
atvinnurekendur,“ segir Gunnlaugur.
„Það liggur ljóst fyrir að þetta hefur
töluverð áhrif á sveitarfélögin. Engu
að síður þurfa þau að halda úti stað-
bundinni þjónustu sem fjármagns-
eigendur greiða í raun ekki fyrir. Þeir
greiða ekki skatt til sveitarfélaga, að-
eins til ríkisins. Þjónusta sveitarfé-
laganna er því niðurgreidd af öðrum
og ekkert kemur inn í pott sveitarfé-
laganna frá fjármagnseigendum þótt
þeir nýti sér þjónustuna. Það er ekki
eðlilegt að halda svona áfram, annað
hvort þarf að reikna þessum einstakl-
ingum lágmarksgjöld til sveitarfélaga
eða að fjármagnstekjuskattinum sé
skipt á milli sveitarfélaga og ríkisins.
Núverandi fyrirkomulag finnst okkur
ekki í lagi.“
Allir eiga að taka þátt
Bergur Ágústsson, bæjarstjóri
Norðurþings, tekur undir og seg-
ir ekki sanngjarnt að sveitarfélögin
séu að verða af útsvari með þessum
hætti. „Að sjálfsögðu halda sveitar-
félögin úti góðri þjónustu. Þetta er
misræmi sem sveitarfélögin og rík-
ið þurfa að setjast yfir og leysa sem
fyrst. Það er ekki sanngjarnt að sumir
greiði ekki fyrir þá þjónustu sem þeir
fá. Það eiga allir að taka þátt í sameig-
inlegum kostnaði vegna grunnþjón-
ustu sveitarfélaganna,“ segir Bergur.
„Að mínu mati er mikilvægt að þetta
sé lagað hið fyrsta þó svo að erfitt sé
að festa tölu á hversu miklum tekjum
við höfum orðið af. Það er sjálfsagt að
þetta sé leiðrétt enda um mikilvægt
jafnræðissjónarmið að ræða.“
SVEITARFÉLÖGIN VERÐA
AF MIKLUM TEKJUM
TrAusTi hAFsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„ekkert kemur inn í pott
sveitarfélaganna frá
fjármagnseigendum
þótt þeir nýti sér þjón-
ustuna.“
Missa tekjur Sveitarfélög víða um
land missa tekjur vegna sívaxandi
hóps fjármagnseigenda.
Próf í
stjórnmálum
„Við ákváðum að bíða með
að kynna þetta þar til styttra
væri í kosningar. Nú ættu
kjósendur að geta tekið próf-
ið til að sannreyna hvað þeir
eiga að kjósa,“ segir Páll Ingi
Kvaran, nemandi við Háskól-
ann á Bifröst.
Páll Ingi vann lokaverk-
efni ásamt fimm samnem-
endum sínum sem tekur á
stefnu íslensku stjórnmála-
flokkanna. Lokaverkefnið
er gagnvirkt sjálfspróf til að
hjálpa kjósendum að sam-
ræma sjónarmið sín áherslum
flokkanna. Prófið inniheld-
ur 11 spurningar í mismun-
andi málaflokkum, sem einna
helst greina flokkana í sundur.
Stefnuskrár þeirra voru not-
aðar til viðmiðunar. Áhuga-
samir geta tekið prófið á slóð-
inni xhvad.bifrost.is.
Uppselt á
allar sýningar
„Þessi sýningarferð hefur ver-
ið algjört ævintýri, bæði hvÞessi
sýningarferð hefur verið algjört
ævintýri, bæði hvað dansinn
varðar og upplifun á menningu,
og náttúrulega svakalega góð
landkynning fyrir Ísland,“ segir
Bryndís Nielsen, upplýsingafull-
trúi Íslenska dansflokksins.
Gífurlegur áhugi hefur verið
fyrir Íslenska dansflokknum í
Kína og áhorfendur hafa hrifist
af sýningum hans. Uppselt hefur
verið á allar sýningar flokksins, í
Shanghai, Guangzhou og Peking.
Viðtökur fjölmiðla, áhorfenda og
atvinnufólks hafa verið afar góð.