Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Blaðsíða 19
DV Sport mánudagur 7. maí 2007 19 AjAx bikArmeistAri í gær fór fram úrslitaleikur hollensku bikarkeppninnar í rotterdam þar sem aZ alkmaar og ajax áttust við. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn 1-1. Ekkert var skorað í framlengunginni og því farið í vítaspyrnu- keppni. Þar var það ajax sem hrósaði sigri en liðið vann 8- 7. íslenski landsliðs- maðurinn grétar rafn Steinsson lék allan leikinn fyrir aZ. Hann tók þriðju vítaspyrnu liðsins í vítakeppninni og skoraði hann. magdeburg tapaði Það urðu óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeild- inni í handbolta um helgina. Botnlið deildarinnar Eintracht Hildesheim vann nýkrýnda Evrópumeistara félagsliða í magdeburg naumlega 36-35. Leikurinn fór fram í gær. á sama tíma vann nordhorn 30-24 sigur á nettestedt Lübbecke en Þórir Ólafsson skoraði fimm mörk í leiknum. silkeborg í slæmum málum Silkeborg féll niður í neðsta sæti í dönsku úrvalsdeildinni um helgina þegar liðið beið lægri hlut fyrir midtjylland 3-1. Bakvörðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson spilaði allan leikinn fyrir Silkeborg en Hólmar Örn rúnarsson kom inn sem varamaður í seinni hálfleik. Hörður Sveinsson er á meiðslalistanum og lék ekki. Silkeborg er nánast fallið en liðið er neðst í deildinni með sextán stig eftir 28 leiki. FC Kaupmannahöfn hefur þrettán stiga forskot í dönsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir tap um helgina. sunderlAnd meistAri í 1. deild roy Keane og félagar í Sunderland unnu um helgina stórsigur á Luton í lokaumferð ensku 1. deildarinnar. Liðið vann 5-0 sigur en Luton var fallið fyrir leikinn. með sigrinum tryggði Sunderland sér efsta sæti deildarinnar og kemst beint upp í úrvalsdeildina ásamt Birmingham. derby, West Bromwich albion, Wolves og Southampton fara í umspil um þriðja lausa sætið í úrvalsdeildinni. enginn í skAmmArkrókinn Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar hefur komist að þeirri niðurstöðu að hvorki Everton né manchester united brutu reglur varðandi kaup fyrrnefnda liðsins á markverðinum Tim Howard. athygli vakti að Howard lék ekki með Everton gegn united þrátt fyrir að Everton hafði alveg gengið frá kaupum á honum. david moyes, stjóri Everton, hafði áður sagt að hann notaði ekki Howard vegna munnlegs samkomulags við manchester united. „Engir ólöglegir samningar voru gerðir. Everton var frjálst að nota Tim Howard í leiknum,“ sagði m.a. í yfirlýsingu frá enska sambandinu. VAn gundy Að hættA Jeff Van gundy, þjálfari nBa-liðsins Houston rockets, ætlar að hætta með liðið og taka sér frí frá þjálfun ef eitthvað er að marka dagblaðið new York Post. núverandi samningur Van gundy rennur út í sumar. new York Post segir þó að brotthvarf hans tengist ekki tapi liðsins á heimavelli fyrir utah í úrslitakeppninni í fyrrinótt. ÍÞRÓTTAMOLAR Kaka misnotaði vítaspyrnu Kaka klúðraði vítaspyrnu þeg- ar AC Milan gerði markalaust jafn- tefli við Fiorentina á San Siro í gær. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið en þau eru í baráttu um Evrópu- sæti. Kaka náði reyndar einu sinni að koma knettinum í netið en dómar- inn dæmdi aukaspyrnu og taldi það mark ekki. „Það kemur mér ekkert á óvart að við náðum ekki fram sams- konar spilamennsku eins og gegn Manchester United í síðustu viku. Það er betra að þessi leikur hafi endað með jafntefli en ekki hinn,“ sagði Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, eftir leikinn. Hann var þó ósáttur við að mark Kaka var dæmt af en hann taldi dóminn rangan. Christian Vieri skoraði sitt fyrsta mark í ítölsku deildinni í átján mánuði í gær en það var jafnframt hans fyrsta mark í búningi Atalanta. Hann kom inn sem varamaður þeg- ar Atalanta vann 3-1 sigur á Siena. Hann var meiddur í meira en ár vegna meiðsla á hlé. „Ég ætla að tileinka öllum þetta mark, sérstaklega Atalanta þar sem félagið hefur alltaf haft trú á mér,“ sagði Vieri en mark hans var stór- glæsilegt, af 40 metra færi. „Ég sá að markvörðurinn var illa staðsett- ur. Boltinn féll vel fyrir vinstri fótinn á mér svo ég ákvað að láta reyna á skot. Það var frábært að sjá boltann í markinu. Ég er loks að ná að jafna mig eftir þessa aðgerð. Ég er kom- inn yfir versta hjallann og þarf nú bara að finna leikformið.“ Vieri ýjaði einnig að því að hann gæti haldið í raðir Fiorentina í sum- ar. Eftir úrslit gærdagsins er ljóst að Messina og Ascoli eru fallin niður í ítölsku B-deildina. elvargeir@dv.is Athyglisverðir hlutir gerðust í ítalska boltanum um helgina: Glenn Roeder er hættur sem knattspyrnustjóri Newcastle United en þetta tilkynnti félagið í gær. New- castle hefur lent í miklum vandræð- um í vetur og hafa meiðsli spilað þar inn í. Félagið er sem stendur í þrett- ánda sæti ensku úrvalsdeildarinn- ar og einnig ollið vonbrigðum í bik- arkeppnum. Newcastle hefur ekki skorað í meira en átta klukkustundir á heimavelli sínum sem er versti ár- angur félagsins síðan 1951. Alveg frá því að Roeder var ráðinn hefur þessi 51. árs stjóri verið um- deildur. Reiði stuðningsmanna náði síðan hámarki eftir tap gegn Black- burn á heimavelli síðasta laugardag og var Roeder harðlega gagnrýndur og einnig Freddy Shepherd, stjórn- arformaður félagsins. Neyðarfundur var haldinn hjá félaginu í gær vegna dapurs árangurs liðsins og á hon- um var tekin sú ákvörðun að Roeder myndi láta af störfum. Roeder var fimmtán mánuði sem knattspyrnustjóri Newcastle en þar er meðtalinn sá tími sem hann var upphaflega til bráðabirgða. kemur stóri sam? Roeder þjálfaði West Ham á sín- um tíma en var rekinn þaðan. Þá tók hann að sér þjálfun hjá ungl- ingaliði Chelsea og var síðan ráðinn sem þjálfari hjá unglinga-akademíu Newcastle. Hann fékk síðan tæki- færi til að stýra aðalliði Newcastle til bráðabirgða þegar Sir Bobby Robson hætti. Ánægja var með hans störf þá og ákveðið að ráða hann alfarið sem knattspyrnustjóra og var það tilkynnt í maí í fyrra. Ekki hafa margir verið nefndir til sögunnar í bresku pressunni sem líklegir til að taka við stjórn New- castle nú þegar Roeder er horfinn á braut. Þar ber helst á nafni Stóra Sam. Sam Allardyce hætti sem knattspyrnustjóri Bolton Wand- eres fyrir viku og fullyrða sumir fjöl- miðlar að hann muni taka við New- castle. Sheperd segist þó ekkert hafa rætt við Allardyce en það er þó vitað að hann hefur miklar mætur á þeim manni. Vonbrigði Roeder var mjög umdeildur í starfi. Newcastle á eina dyggustu stuðningsmenn Englands og rík- ir mikil óánægja með gengi liðsins síðustu ár. Beðið hefur verið eftir því að Newcastle taki skrefið inn í hóp betri liða deildarinnar en það hefur gengið erfiðlega. Þó hefur ýmsu ver- ið tjaldað af stjórn félagsins, mikl- um fjármunum hefur verið varið í að gera leikvanginn sem glæsilegasta og einnig í að kaupa leikmenn sem hafa flestir ollið vonbrigðum. Mikill vandræðagangur hefur verið á liðinu þetta tímabil en sjálfur hefur Roeder ekki viljað taka neina ábyrgð. Hann hefur talað um að mistök hafi verið gerð þegar liðið var mótað og sagðist sjálfur þurfa tíma til að koma leikmönnum inn sem hann vill hafa. Þá hefur hann mikið skýlt sér á bakvið meiðslavandræði Newcastle.Varnar- leikur liðsins hefur oft á tíðum verið kjánalegur og ljóst að mikil vinna er framundan fyrir þann sem tekur við þessu starfi. elvargeir@dv.is Roeder farinn frá Newcastle langþráð mark Vieri skoraði í fyrsta sinn fyrir atalanta. ársmiðunum hent reiðir stuðningsmenn newcastle köstuðu ársmiðum sínum inn á völlinn. stóri sam Er sterklega orðaður við newcastle. glenn roeder hætti sem knattspyrnustjóri New- castle í gær en liðið hefur ollið gríðarlegum vonbrigð- um á tímabilinu. sam All- ardyce er talinn líklegastur til að taka við starfinu. Varla saknað Það er ljóst að ekki margir stuðningsmenn newcastle munu sakna glenn roeder.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.