Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Síða 10
Þótt bókin sé sögð á flótta undan netbloggi
(kannski á þetta fremur við um innihaldið en bókina
sjálfa), langar einkum bjána að fá bók um sig. Sem
tekst með vissum skilyrðum og söluhæfni. Í þessu
er álíka mikill munur á bjána og blábjána og Jóni og
séra Jóni. Vegna örlaga innihaldsins veit fólk hvaða
bók er við þess hæfi. Loks er með frjálshyggjunni far-
ið að fyrrverandi kröfu kommúnista um bókmennt-
ir: Efni á að vera fyrir fólkið. Að minnsta kosti asnast
fólk til að kaupa eða fær bjánabók að gjöf. Stundum
er skylt að eiga bók til að vera í flokki eða liði. Henni
er flett. Svo gleymist hún eins og metsölubækur um
frægt fólk auglýstar fyrir jólin.
Við þekkjum þetta úr menningu okkar. Næstum
hver blók frá biskupi til konu sem var misnotuð í
æsku hefur fengið um
sig metsölubók og upp
á síðkastið loforð um
kvikmynd í ofanálag. Bjánum finnst ekki nóg að vera
í fréttum og þáttum, þeir blogga líka og vilja kom-
ast á alvöruprent. Bókin virðist vera alvaran í þeirra
augum. Kannski ekki til lestrar heldur til að horfa á
eins og flettanlegan skjá, setja upp í hillu, taka hana
úr hillu, skoða sig og sýna öðrum. Einnig fer bókin í
bókasöfn. Blækur halda að með samleik geymslu og
útláns verði þær ódauðlegar. Óttinn við að gufa upp
eins og skuggi á skjá tröllríður liðinu. Það veit að ef
það hverfur úr sjónvarpinu fer minningin um það til
fjandans.
Skjáliðið reynir þess vegna að blogga sig út úr
þeirri bölvun sem það skapaði sér með framanum. Í
gríð og erg bloggar það svipað belju sem sækir tuggu
í eigin belg til að jórtra betur á henni. Í nútímaskiln-
ingi er beljan þá að blogga. Hér er stuttur listi um
frægt erlent fólk sem hefur nýlega skrifað bók um
sig: David Beckham og Wayne Rooney, ólæsir fót-
boltamenn, hvor með um 5 milljónir punda í höf-
undarlaun. Sarkozy skrifaði í skyndi Saman og seldi
200.000 eintök á fáum dögum. Segolene mótfram-
bjóðandi hans fékk líka bók um sig Hver er frú Royal?
og komst á topp 10. Jon Stewart á Daily Show skrif-
aði Berar myndir af frægu fólki og seldi milljón. En
góðu mæðurnar, Madonna og Gery Halliwell, skrifa
hjartnæmt fyrir börn, kannski með þýðingu Silju Að-
alsteinsdóttur í huga en verðlaunavæna forsetann á
bak við eyrað.
mánudagur 7. maí 200710 Umræða DV
Jón Gerald Sullenberger
Blækur og bækur
Kjallari
ÚtGáfufélaG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
StJórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStJóri: Hjálmar Blöndal
ritStJóri oG áByrGðarmaður: Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStJóra: Janus Sigurjónsson
Allir, allavega flestir, sem starfa eða hafa starfað á fjölmiðlum
hafa þurft að ræða við fólk sem fer mikinn og sakar nafngreint fólk
um allt og ekkert. Það er hlutverk þeirra sem starfa á fjölmiðlum
að gæta þess að fólk sem þannig talar komist ekki upp með ásak-
anir sem ómögulegt er að vita hvort eru réttar eða rangar. Nokkrir
fjölmiðlar hafa af einhverjum ástæðum kosið að leggja þessa reglu
til hliðar. Jón Gerald Sullenberger hefur fengið rúm í nokkrum fjöl-
miðlum til að bera alvarlegar sakir á nokkra nafngreinda menn,
menn sem harðneita áburðinum og ekkert hefur komið fram annað
en að Jón Gerald sé að bulla og þvæla. Og ekki í fyrsta sinn.
Staðhæfingar Jóns Geralds um að sér hafi verið bornar svimandi
háar mútur eru ótrúlegar. Siðferðisvitund hans var ekki sterk á þeim
tíma sem hann segir að sér hafi verið boðnar múturnar. Hann hef-
ur sjálfur játað að hafa gefið út tilhæfulausan reikning. Hann hef-
ur játað á sig lögbrot. Eins hefur
komið fram að fjárhagur hans var
veikur. Ekkert hefur komið fram
sem hrekur það að hann hafi þeg-
ið sjö milljónir í mútur eða sem
fyrirgreiðslufé fyrir að halda kær-
um á Baugsmenn áfram. Hann
þáði peninga, enda í vanda. Svo
miklum vanda að Morgunblaðið
tók að sér að annast þýðingar fyrir
hann. Ástæðan var sögð vera bág
fjárhagsstaða. Er þá unnt að trúa
að maður sem segist sjálfur hafa
brotið lög, að maður sem þáði sjö
milljónir króna til að ganga erinda annarra manna hefði afþakkað
mútur upp á tugi ef ekki hundruð milljóna. Alls ekki. Það skiptir
samt ekki mestu í dag hvað Jón Gerald segir eða gerir. Það er merki-
legast að fjölmiðlar leyfa honum að vaða uppi með galnar ásakanir
á menn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann gerir það.
Fyrirtæki þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson starfar er meðal eig-
enda DV. Það breytir engu um DV og afstöðu til þvælunnar í Jóni
Gerald. Það breytir því ekki heldur að þeir fjölmiðlar sem hafa kos-
ið að gera mikið með kjaftaganginn í Jóni Gerald hafa margsinn-
is afþakkað fullyrðingar manna um annað fólk og ekki viljað birta
hindrunarlaust alvarlegar ásakanir á nafngreinda menn. Þess vegna
vantar skýringar á hvers vegna Jón Gerald fær að vaða uppi núna.
Er það vegna þess að það hentar einhverra hluta vegna? Mega fjöl-
miðlar segja skilið við prinsipp, sanngirni og vönduð vinnubrögð ef
þeir sem verða fyrir áburðinum eru ekki stjórnendum fjölmiðlanna
þóknanlegir? Svo virðist vera.
Sigurjón M. Egilsson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: árvakur. dV áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
fréttaStJóri: Brynjólfur Þór Guðmundsson
aðStoðarritJóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auGlýSinGaStJóri: auður Húnfjörð
uss... Ekki múkk... Hann
má ekki finna okkur...
Þetta er okkar tækifæri til
að strjúka...
Sjálfstæðismaður vinnur
Samfylkinguna
Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði
héldu nýstárlegt kvöld til þess að
veiða atkvæði á fimmtudagskvöld-
ið. Þá héldu þeir svokallað pöbbkvis
en slíkt mun einnig vera á hverjum
föstudegi á Grand Rokk. Á meðal
gesta var Margrét
Gauja Magnús-
dóttir en annars
var fátt um fram-
bjóðendur. Spyr-
illinn var enginn
annar en fyrrver-
andi ritstjóri Bleiks
og blás, Ragnar
Pétursson, og
voru verðlaunin glæsileg. Flestir voru
sammála því að spurningarnar hefðu
verið skemmtilegar og lunknar. Ung-
ur maður sigraði keppnina ásamt
kærustu sinni en það kvisaðist út eftir
keppnina að hann hefði verið sjálf-
stæðismaður.
Skúbb Íslands í dag
Umræðuþátturinn Ísland í dag átti
ágætt viðtal við tengdadóttur Jónínu
Bjartmarz, Luciu Celeste Molina
Sierra, en ríkisborgararéttur hennar
hefur vakið ansi mikla athygli. Eins
og flestir vita þá er Jónína umhverf-
isráðherra og flokksbundinn Fram-
sóknarflokkn-
um. Hitt er þó
að Steingrímur
Sævarr Ólafs-
son, sem tók
viðtalið ásamt
Ingu Lind
Karlsdóttur, er
sjálfur fram-
sóknarmað-
ur. Hann vann sem aðstoðarmaður
Halldórs Ásgrímssonar í forsæt-
isráðherratíð hans en Steingrím-
ur hætti um svipað leyti og Halldór
sjálfur. Þess vegna eru margir hálf-
hissa á að hann hafi tekið viðtalið.
Samfylking íhugar rannsókn
Samfylkingarmenn ræða nú um
það sín á milli að kanna þurfi
nánar veitingu
ríkisborgararétt-
ar til Luciu.
Þetta verður gert
með því að fá
aðgang að
gögnum sem
fylgdu umsókn
hennar. Gögnin
eru trúnaðar-
mál. Ljóst er að ekki eru öll kurl
komin til grafar í málinu.
Fyrrnefndur Steingrímur
Sævarr hélt því fram fyrir helgi
að meðmælabréf með umsókn
Sierra bentu ekki til neinna
tengsla við umhverfisráðherrann.
Eitt meðmælabréfanna er þó
ritað af móður Jónínu Bjart-
marz, eins og nánar er fjallað um
í blaðinu í dag.
SandKorn
rithöfundur skrifar
GuðberGur berGSSon
David Beckham og Wayne
Rooney, báðir ólæsir
fótboltamenn, hvor með
um 5 milljónir punda í
höfundarlaun.Mega fjölmiðlar segja
skilið við prinsipp, sann-
girni og vönduð vinnu-
brögð ef þeir sem verða
fyrir áburðinum eru ekki
stjórnendum fjölmiðl-
anna þóknanlegir? Svo
virðist vera.
FÖSTUDAGUR 18. MAI FRÁ 20:00
Salsa Celtica(UK)
Stórsveit Samúels
Jóns Samúelssonar (IS)
Á NASA VIÐ AUSTURVÖLL
17. - 19. mai
vorblot.is
MIÐASALAN ER HAFIN!
Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er ekki síður mikilvæg en fyrsta
flokks aðbúnaður og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra staðsetningu í
hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði
og fyrirtaks veisluþjónustu.
Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á www.veislukompaniid.is
eða hringdu í síma 517 5020 og veislan er í höfn!
Fundur í miðborginni
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A