Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Qupperneq 15
West Ham komst í fyrsta sinn í langan tíma úr fallsæti með því að leggja Bolton 3-1 á heimavelli. Car- los Tevez átti stórbrotinn leik, skor- aði tvö og lagði upp þriðja mark- ið sem Mark Noble skoraði, allt á fyrsta hálftíma leiksins. Gary Speed minnkaði muninn þegar um tuttugu mínútur voru eftir. West Ham þarf nú eitt stig gegn Manchester United í lokaleik tímabilsins á Old Trafford til að tryggja að spiluð verði úrvals- deildar knattspyrna á Upton Park á næsta tímabili. „Sigurinn gefur okkur gott tækifæri á að halda okk- ur uppi. Að komast svona langt og ekki nýta okkur það væri hræðilegt,“ sagði Alan Curbishley eftir leikinn. „Við getum ekki beðið um erf- iðari stað að spila lokaleikinn (Old Trafford) en þessa stundina erum við að spila vel og erum fullir sjálfs- trausts. Ein úrslit féllu okkur í hag og ein ekki. Við verðum bara að sjá til þess að við týnum upp stig þar sem þau eru í boði,“ sagði Curbis- hley og bætti við að hann vissi ekki hvort nýkosinn leikmaður ársins Carlos Tevez yrði áfram í búningi West Ham á næsta ári. „Við vitum það bara ekki. Það á svo margt eftir að gerast áður en við fáum að vita það, hvort við verðum áfram í þessari deild meðal annars. Við munum njóta þessarar viku eins mikið og við getum en við hlökkum til verkefnisins sem er framundan.“ Nýráðinn stjóri Bolton Sammy Lee var ánægður með síðari hálf- leik hjá sínu liði. „Við vorum ekki að hjálpa okkur sjálfum. Við sögð- um fyrir leikinn að um leið og flaut- að verður til leiks þá mun West Ham sækja fast að okkur til að kveikja í áhorfendum. Við héldum okkur ekki við upprunalega leikjaplanið og við fengum að kenna á því. En við urðum betri í síðari hálfleik. Ég verð að hrósa leikmönnum mínum fyrir síðari hálfleik. Eftir hálftíma söknuðu allir Stóra Sam, en við verðum að halda áfram. Hann tók sína ákvörðun, félagið tók sína ákvörðun, ég tók ákvörðun og er stoltur að vera stjóri þessa fé- lags.“ Wigan, sem hefur einbeitt sér meira að því að kvarta undan sekt- inni sem West Ham fékk á dögunum fyrir félagaskipti Javier Mascherano og Carlos Tevez en að sér sjálfum, er komið í veruleg vandræði eftir tap gegn Middlesbrough 0-1 á heima- velli. Ástralinn Mark Viduka skoraði sigurmarkið sem var ansi klaufalegt. Stuart Downing tók aukaspyrnu, rann til og tók slaka spyrnu sem reyndist síðan verða frábær stoðsending. Wig- an verður að vinna Sheffield United í lokaumferðinni til að forða sér frá falli og treysta á markamun. „Downing fór tvisvar í boltann,“ sagði svekktur Paul Jewell eftir leik- inn. „Hann ætlaði að skjóta á markið, rann og boltinn fór af vinstri fæti hans í þann hægri. Þaðan upp í loft og þar misstum við einbeitinguna og það leiddi til þess að Viduka skoraði. Annað hvort átti að taka auka- spyrnuna aftur eða dæma okkur aukaspyrnu því þetta má ekki.“ Hann neitaði að viðurkenna að Wigan væri á leið niður um deild. „Við erum enn andandi en við verðum að þjappa okkur vel saman og berjast allir sem einn. Á meðan það eru stig í boði þá er von.“ Sheffield tapaði 3-0 á útivelli gegn Aston Villa. Gabriel Agbonlahor, As- hley Young og Patrik Berger sáu um markaskorun Villa manna og verður því mikil spenna í viðureign Sheffield og Wigan á lokadegi enska leiktíma- bilsins. Neil Warnock stjóri Sheffield var ósáttur við tapið en sáttur að vera efstur botnliðanna. „Það á margt eftir að gerast. Við vitum að við vorum sla- kir, en á heildina litið höfum við ver- ið góðir á þessu tímabili. Nú er þetta í okkar höndum og það er akkúrat eins og ég vil að það sé.“ Hann var ekki par hrifinn af kollega sínum hjá Liverpool sem tapaði fyrir öðru botnbaráttu liði Fulham en Rafa Benitez hvíldi margan lykilmanninn. „Maður fær ekki margan greiðan þeg- ar maður er í þessari stöðu. Ég hafði á tilfinningunni að Liverpool myndi gera þetta. Þess vegna hélt ég eigin- lega með Chelsea í Meistaradeildinni. Ef ég segi það sem ég vil segja þá fæ ég væntanlega sekt þannig ég held að ég þegi bara. Ég vona bara að Sir Alex tefli fram sterku liði gegn West Ham í næsta leik. Það verður mikil tauga- spenna í lokaumferðinni. West Ham fer á Old Trafford, það verður spenna hjá okkur og ekki gleyma að Charlton fer til Liverpool þannig að allt getur gerst.“ Níu breytingar á Liverpool Rafa Benitez stjóri Liverpool gerði níu breytingar á liði sínu frá því í Meistaradeildinni á þriðjudag. Liverpool mætti Fulham á Craven Cottage og mátti sætta sig við tap 1- 0. Heiðar Helguson byrjaði á bekkn- um hjá Fulham en það var annar varamaður, Bandaríkjamaðurinn Clint Dempsey, sem skoraði sigur- markið. Þetta var fyrsti sigur Ful- ham undir stjórn Lawrie Sanchez en hann tók við af Chris Coleman. Með sigrinum tryggði Fulham tilverurétt sinn í deildinni. Benitez bað um eftir leikinn að samskipti dómara yrðu skoðuð en Michael Brown skallaði Xabi Alonso þegar dómarinn sá ekki til. „Þetta var augljóst þegar við horfðum á þetta á bekknum í endursýningu. Fjórði dómarinn var við hliðina á okkur með kallkerfið en kannski virkaði það ekki. Við verðum að bæta samskipti dómaranna með því að eyða pening, eða spara pening með því að sleppa fjórða dómaran- um því þeir virðast ekki segja neitt þegar þeir sjá atvik í sjónvarpinu.“ Lawrie Sanchez, bráðabirgða- stjóri Fulham, var þó í betra skapi en Benitez. „Sigurinn var gríðarlega mikilvægur. Ég sagði við leikmenn fyrir leikinn að þetta væri í okk- ar höndum en eftir helgina verður það kannski ekki raunin. Við vorum betri en þeir, vörðumst vel og nýtt- um okkar tækifæri og verðskulduð- um sigurinn.“ Charlton, lið Hermanns Hreið- arssonar, er því í erfiðri stöðu en þeir leika í kvöld gegn Tottenham. Charlton verður að vinna viður- eignina og síðan Liverpool á Anfield í lokaumferðinni til að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. benni@dv.is DV Sport mánudagur 7. maí 2007 15 kom West Ham af botninum tevez Eggert Magnússon afhenti Carloz Te- ves viðurkenningu fyrir að vera besti leikmaður tímabils- ins hjá West Ham fyrir leik liðsins gegn Bolton á laug- ardag. Tevez svar- aði með stórkost- legri frammistöðu. Eigendurnir sáttir Björgólfur guðmundsson og Eggert magnússon gátu brosað að leik loknum. Skallaður Xabi Xabi alonso var skallaður af michael Brown. mancHester united englandsmeistarar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.