Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Blaðsíða 20
Það verður ekki af Floyd May-
weather tekið að hann er einn besti
boxari pund fyrir pund. Hann vann
Oscar De La Hoya í bardaga þeirra
um WBC-titilinn í léttmillivigt. May-
weather var búinn að segja fyrir bar-
dagann að hann ætlaði að þagga
niður í De La Hoya en sú varð ekki
raunin.
Oscar De La Hoya er gríðarlega
vinsæll boxari og átti stuðning hallar-
innar. Eftir að áhorfendur höfðu tekið
á móti Mayweather með bauli og sví-
virðingum varð allt vitlaust þegar De
La Hoya kom inn í salinn. De La Hoya
var með yfirburði í fyrstu lotunum og
áhorfendur hófu að syngja „Oscar,
Oscar, Oscar“.
En smám saman komst May-
weather meira inn í bardagann og
landaði nokkrum þungum höggum.
Hraði hans er með ólíkindum og það
var fyrst og fremst hann sem tryggði
Mayweather sigurinn.
Tveir af þremur dómurum dæmdu
Mayweather sigur, Chuck Giampa
dæmdi 116-112 og Jerry Roth dæmdi
115-113 fyrir Mayweather en Tommy
Kaczmarek dæmdi De La Hoya sig-
ur 115-113. Hefði Roth fengið það út
að De La Hoya hefði unnið 12. lotuna
hefði bardaginn endað með jafntefli.
„Þegar litið er á að mín högg hittu
oftar getur fólk séð að ég er nýi meist-
arinn,“ sagði Mayweather eftir bar-
dagann. „Ég var að skemmta mér
í hringnum en þvílíkur bardagi. Ég
var búinn að segja að aðdáendurnir
myndu fá góðan bardaga og sú varð
raunin. Hann var harður af sér en gat
ekki unnið þann besta.“
Samkvæmt tölfræðinni þá hitti
Mayweather í 207 höggum af 481
(43%) en De La Hoya hitti í 122 af 587
(21%).
Í hvert sinn sem De La Hoya land-
aði höggi á Mayweather trylltist lýð-
urinn í höllinni. En Mayweather hélt
sér við sitt skipulag og sýndi oft á tíð-
um af hverju hann er talinn sá besti.
De La Hoya var ekki sáttur við nið-
urstöðuna og fannst að hann hefði
unnið.
„Mér fannst ég vera betri og eiga
sigurinn skilið. Ég hitti hann oft mjög
fast, ég veit að hann fann fyrir högg-
unum, ég sá það á honum. Ég var að
pressa hann, ef ég hefði ekki gert það
þá hefði enginn bardagi verið. Ég er
enn meistari og það verður að gera
meira en þetta til að vinna meistar-
ann.“ Þetta var þriðja tap De La Hoya
í fimm síðustu bardögum. Hann fékk
um 25 milljónir dala, um sautján
hundruð milljónir króna, fyrir bar-
dagann, á meðan Mayweather fékk
aðeins um 10 milljónir dala, jafnvirði
640 milljóna króna. Hann tilkynnti að
hann væri hættur þrátt fyrir að vera
aðeins þrítugur.
„Ég er sestur í helgan stein. Ég þarf
ekki að sanna neitt meira. Nú ætla ég
að eyða meiri tíma með börnunum
mínum.“
De La Hoya hafði einnig gefið það
út að hann myndi setjast í helgan stein
eftir bardagann en var samt ekki jafn
viss og andstæðingur hans eftir á.
„Nú mun ég setjast niður og horfa
á bardagann. Sjá hvernig hreyfingarn-
ar mínar voru, hvernig líkaminn brást
við og skoða sjálfan mig. Þið verðið
bara að bíða og sjá.“ benni@dv.is
mánudagur 7. maí 200720 Sport DV
Floyd Mayweather var ekki sannfærandi á
móti Oscar De La Hoya en stóð við stóru orðin
og landaði sigri í stærsta boxbardaga í langan
tíma. Mayweather hitti oftar og fastari högg
rötuðu inn og það nægði til sigurs. Tveir af
þremur dómurum dæmdu Mayweather sigur.
Sexfaldur heimSmeiStari
í fimm þyngdarflokkum
Aðþrengd eiginkona Eva Longoria lét
sjá sig. unnusti hennar Tony Parker var
þó hvergi sjáanlegur.
Here´s Johnny Jack nicholson var hress
að vanda.
Jay Z rappmógúllinn Jay Z lætur sig
ekki vanta þar sem stórviðburðir eru.
Engin púðurskot Oscar
de La Hoya lét Floyd
mayweather finna til
tevatnsins.
Kýla, berja, slá, farðu frá Floyd
mayweather svaraði eftir smá hikst í byrjun.
Sex titlar Floyd
mayweather heldur
hér á sex heims-
meistarabeltum.