Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Síða 27
Leikur í
kvikmynd
Janet Jackson snýr nú aftur á hvíta
tjaldið en síðast sást til hennar í Nutty
Professor árið 2000.
Nú kemur hún til
með að leika á móti
Tyler Perry í mynd-
inni Why Did I Get
Married? Myndin
er byggð á sam-
nefndu leikriti og
kemur Perry til með
að leikstýra henni
og framleiða. Þetta
verður fjórða myndin í gamanmynda-
seríum Perrys og fjallar þessi mynd um
hjón sem fara á hverjum vetri með vin-
um sínum í hópferð til að reyna á hjóna-
bandið. Fyrirhugað er að hefja tökur nú
í vikunni í Kanada og verður seinni hlut-
inn tekinn upp í Atlanta þar sem Perry
hefur nýlega sett upp kvikmyndaver.
Kvikmynd um Jesse James lítur ekki dagsins ljós þrátt fyrir að upptökur hafi klárast fyrir tveimur árum.
Kúrekamyndin sem kemur ekki út
Það kemur einstaka sinnum fyrir að heilu
kvikmyndirnar eru teknar upp, án þess að
nokkur áhorfandi fái að sjá þær að lokum. Þetta
á þó sjaldnast við í Hollywood, þar sem svo
miklum peningum er eytt í framleiðslu mynda
að það einfaldlega verður að koma þeim út til
að þær skili arði. Kvikmyndin The Assassin-
ation of Jesse James by the Coward Robert Ford
er þó undantekning, en upptökum á henni lauk
fyrir tveimur árum, en ekkert bólar þó á henni.
Í aðalhlutverkum eru þeir Brad Pitt og Casey
Affleck og fjallar myndin um útlagann Jesse
James og síðasta rán hans ásamt félaga sínum
Robert Ford. Myndin er byggð á sannri sögu
en það var svo Ford sem myrti Jesse að lokum.
Í nýlegri grein í dagblaðinu Los Angeles Times
kemur fram að ósætti ríki milli framleiðanda
og leikstjóra myndarinnar. Í greininni segir að
tvær útgáfur séu til af myndinni, ein sem fram-
leiðandinn Brad Pitt er ánægður með og önnur
sem leikstjórinn Andrew Dominik er sáttur við.
Munurinn á myndunum er sá að leikstjórinn
vill segja dimma sögu af kaldrifjuðum ræn-
ingjum á meðan Pitt vill gera spennandi has-
armynd í anda Clint Eastwood-vestranna. Þá
hefur leikstjórinn Ridley Scott verið fenginn til
þess að aðstoða við klippingu myndarinnar. Þá
hefur verið sagt að útgáfa á myndinni sem er
bæði trú sögunni og í samræmi við hugmyndir
leikstjórans verði frumsýnd í Bandaríkjunum
þann 21. september.
Brosandi
og blönk
Söngkonan Lily Allen segist ekki hafa
haft mikið upp úr því að vera tónlist-
armaður og þvertekur fyrir að hafa
grætt á topplögum sínum. Söngkon-
an segist ekki einu sinni eiga fyrir lítilli
íbúð í London. „Ég hef verið í tónlist-
arbransanum í nokkur ár og hef alveg
fengið einhvern pening, en ekki einu
sinni nóg til þess að kaupa mér íbúð í
borginni sem ég ólst upp í ,“ segir Lily
og bætir við: „Hversu strembið hlýtur
líf jafnaldra minna að vera? “
Brad Pitt Framleiðandi og
aðalleikari myndarinnar.
Andrew Dominik Vill klippa myndina þannig
að hún verði drungaleg og dimm.
„Garrvillir íslendskir skemti-
punkarar á G!,“ er fyrirsögnin á frétt
inni á færeyska vefnum portal.fo
þess efnis að íslenska rokksveitin
Dr. Spock spili á G! Festival í sumar.
Óttar Proppé annar söngvari sveit-
arinnar segir eftirvæntinguna með-
al hljómsveitarmeðlima mikla.
Magnaðasta festival
á byggðu bóli
„Nokkrir meðlimir í Dr. Spock
hafa spilað þarna áður með Ensimi,
Bang Gang og Mugison og eru sam-
mála um að þetta sé eitthvert magn-
aðasta festival á byggðu bóli,“ segir
Óttar sem er feginn að vera búinn
að fá grænt ljós á hátíðina. „Við viss-
um af hátíðinni og vorum búnir að
vera að ota okkar tota. Síðan var út-
sendari frá þeim á Aldrei fór ég suð-
ur og hann sannfærðist um að þetta
væri ekki algjört rugl. Þá fengum við
staðfestinguna.“
Óttar hlakkar mikið til að koma
til Færeyja og getur ekki ýmindað sér
betra athvarf fyrir sig eða Dr. Spock.
„Ég hef aldrei gerst svo frægur að
hafa komið til Færeyja. Ég get þó
ekki ímyndað mér betri stað í heim-
inum fyrir mig eða þessa hljómsveit
en pínulitlar eyjar þar sem menn lifa
á hvalspiki og þurrkuðum hákarli.“
Rokkað í fjörunni
„Það voru meira en 10.000
manns á hátíðinni í fyrra sem er nú
bara um 20% af íbúafjöldanum,“
segir Óttar um hátíðina sem hef-
ur undanfarin ár fengið einróma
lof tónlistarmanna og hátíðar-
gesta. „Þetta er lítill bær og hátíðin
fer fram í fjörunni þarna fyrir neð-
an. Síðan er bara opið hús í öllum
bænum og menn geta gengið þarna
á milli og rætt við fólk,“ segir Óttar
og talar um að hátíðinni megi helst
líkja við ofvaxna þjóðhátíð.
Dr. Spock ætlar að vera dugleg
við að spila í sumar og er að plana
ýmsa tónleika þessa dagana. „Við
erum að skoða þetta en það er ekki
búið að negla neitt niður ennþá. Við
stefnum þó að því að spila vítt og
breytt um landið og svolítið út úr
vínveitingarhúsunum í hundrað og
einum. Svo ef einhver vill bjóða okk-
ur til útlanda þá erum við líka oft til í
það,“ segir Óttar kíminn að lokum.
asgeir@dv.is
Garrvillir íslendskir
skemtipunkarar á G!
Orkuboltarnir í Dr. Spock munu
spila á tónlistarhátíðinni G! Festi-
val í Færeyjum í sumar. Óttar
Proppé söngvari sveitarinnar segir
eftirvæntinguna mikla.
Dr. Spock Eins og
náttúruafl á sviði.
Óttar Proppé Getur ekki ímyndað sér betri stað
en Færeyjar fyrir sig og Dr. Spock.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Á
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
STÆRSTA ORRUSTAN ER INNRI BARÁTTAN
Fyrsta stórmynd sumarsins
HEIMSFRUMSÝNING
SPIDERMAN 3 kl. 6 - 8 - 10.40* B.I. 10 ÁRA
NEXT kl. 6 - 9 - 11 B.I. 14 ÁRA
*KRAFTSÝNING
SPIDERMAN 3 kl. 2.30 - 5.30 - 8.30 - 11.20 B.I. 10 ÁRA
PATHFINDER kl. 8 - 10.15 B.I. 16 ÁRA
INLAND EMPIRE kl. 2.30 - 5.45 - 9 B.I. 16 ÁRA
HILLS HAVE EYES 2 kl. 3 - 6 - 8 - 10 B.I. 18 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3 - 6
SPIDERMAN 3 kl. 5 - 8 - 11 B.I. 10 ÁRA
SPIDERMAN 3 SÝND Í LÚXUS kl. 5 - 8 - 11
NEXT kl. 5.45 - 8 - 10.15 B.I. 14 ÁRA
PATHFINDER kl. 5.45 - 8 - 10.15 B.I. 16 ÁRA
HILLS HAVE EYES 2 kl. 10.30 B.I. 18 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 8 B.I. 16 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3.45
TMNT kl. 4 - 6 B.I. 7 ÁRA