Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Page 15

Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1997, Page 15
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83/FYLGIRIT 35 15 g. Árangur hcilbrigðisþjúnustu. Heilbrigðis- þjónustan byggir á arfleifð fyrri tíma. Þannig hafa heilbrigðisrannsóknir sýnt fram á nauðsyn smit- gátar, gagnsemi ónæmisaðgerða og orsakir sjúk- dóma, til dæmis lungnakrabbameins og hjarta- og æðasjúkdóma svo eitthvað sé nefnt. Þessi þekking hefur með tímanum orðið grundvöllur fræðslu og forvarna, sem heilbrigðisþjónustan jafnt sem aðr- ir, svo sem heilbrigðiseftirlit og skólar, hafa síðan sinnt. Sumar niðurstöður heilbrigðisrannsókna er auðveldlega hægt að færa milli landa, en aðrar byggjast að talsverðu leyti á staðbundnum rann- sóknum. Erfitt er að finna heppilegan mælikvarða til að meta árangur heilbrigðisþjónustunnar en fullyrða má að íslensk heilbrigðisþjónusta hafi skilað góð- um árangri á undanförnum árum til dæmis þegar horft er til meðalævilengdar og ungbarnadauða svo dæmi séu tekin. Á undanförnum 25 árum hafa meðalævilíkur íslendinga aukist um fimm ár. Meðalævilíkur íslenskra kvenna eru nú með því hæsta sem þekkist og íslenskir karlar eru í efsta sæti. Meðalævilíkur Breta eru um 2,5 árum styttri en íslendinga og Dana tæplega fjórum árum styttri. Norðmenn og Svíar hafa hins vegar svip- aðar ævilíkur og íslendingar (17). Ungbarna- dauði, það er andlát barna yngri en eins árs, hefur farið lækkandi á íslandi nánast alla þessa öld og er með því lægsta sem þekkist. Hjá unglingum og ungu fólki eru slys og sjálfsvíg algengasta dánar- orsökin, hjá fólki 35-55 ára eru illkynja æxli al- gengasta dánarorsökin, en hjarta- og æðasjúk- dómar eftir þann aldur (18). Auknar meðalævilíkur íslendinga eiga sér fleiri skýringar en árangur heilbrigðisþjónustunnar og má þar nefna samfélagslega þætti svo sem betri Tafla III. Notkun ýmissar heilbrigdisþjónustu utan legudeilda (% af lieildarkomufjölda). 1990 1994 1. Heilsugæsla/almenn læknisþjónusta 59,0 61,9 1.1 Heilsugæslustöðvar 73,0 1.2 Sjálfstætt starfandi heimilislæknar 11,0 1.3 Heilsuverndarstöð Reykjavíkur 13,6 1.4 Læknavaktin s/f 2,4 Sérfræðiþjónusta 40,9 2.1 Sérfræðilæknar 62,0 2.2 Göngudeildir 34,9 2.3 Krabbameinsfélagið 2,7 2.4 Hjartavernd 1,0 * Heilbrigðisskýrslur, 1989-1990, útg. 11/94. híbýli, nægjanlega fæðu, öruggari samgöngur og betri vinnuaðstæður sem hafa jákvæð áhrif. Síð- ustu þrjá áratugina hefur dánartíðni vegna um- ferðarslysa lækkað um meira en helming ef miðað er við fjölda bifreiða og það sama á við um önnur Norðurlönd. Dánartíðni barna vegna umferðar- slysa er þó hærri hér á landi en í nágrannaríkjun- um (19). Aðrir þættir svo sem félagsleg vansæld og aukin neysla vímuefna hefur hins vegar and- stæð áhrif. Fullyrða má þegar litið er til allra þátta að þær auknu fjárveitingar sem farið hafa til heilbrigðis- mála á undanförnum áratugum hafa skilað góð- um árangri. h. Fjármögnun. íslensk heilbrigðisþjónusta er að mestu fjármögnuð með skattgreiðslum en þó hefur greiðsluþátttaka sjúklinga farið vaxandi undanfarin ár (tafla 2 í viðauka A). Fjárveitingar Alþingis til heilbrigð- ismála eru skýrt dæmi um forgan- gsröðun á samfélagsstigi sem fram- kvæmd er af þeim fulltrúum al- mennings sem sitja á Alþingi. Fjárveitingar eru ákvarðaðar til eins árs í senn og hafa að mestu staðið í stað nokkur undanfarin ár. Fjárveitingar til svo skamms tíma valda miklum vandkvæðum í allri ákvarðanatöku og áætlanagerð í heilbrigðisþjónustu. Talsvert hefur skort á að ákvörðunum heilbrigðis- yfirvalda hafi verið fylgt eftir við samþykkt fjárlaga. Engin umræða hefur farið fram hér á landi, um hversu miklu fjármagni eðlilegt sé að verja til heilbrigðismála.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.