Kjarninn - 03.10.2013, Page 54
10/11 kjarninn Viðmælandi Vikunnar
að kosningamáli. „Það er enginn að tala um þetta nema
þegar kosningar eru að nálgast. Þá fara allt í einu allir að
hafa voðalega miklar skoðanir á flugvellinum. Fyrir síðustu
kosningar sagði ég að ég hefði ekki hundsvit á þessu máli og
hefði aldrei flutt flugvöll. Ég ætlaði því að afla mér upplýsinga
um málið. Nú hef ég gert það, setið endalausa fundi um þenn-
an flugvöll, og er algjörlega fullviss um það að þessi flugvöllur
þarf að fara. Það er bara spurning hvert, með hvaða hætti og
hvenær. En hann fer. Annað kemur ekki til greina.“
Vill sameina sveitarfélög
Í stjórnarsáttmála sitjandi ríkisstjórnar var meðal annars
lagt upp með það markmið að afnema gólf á útsvari. Það
myndi þýða að sveitarfélög með lágt þjónustustig gætu
nánast hætt að rukka útsvarsskatt og lækkað skattbyrði íbúa
sinna gríðarlega. Jóni finnst þetta hræðileg stefna. „Það að
búa til skattaparadísir í sveitarfélögum finnst mér ömurleg
tilhugsun. Með þessum tillögum er verið að skapa meira
samfélag óréttlætis. Mér finnst þetta hræðilegt. Skelfileg
til hugsun. Þetta mun auka enn á elítisma og gerir það að
verkum að fólk með háar tekjur mun geta haft það ennþá
betra á kostnað hinna.
Ég hefði vilja að okkur hefði orðið meira ágengt í samein-
ingu sveitarfélaganna. Samvinna hefur aukist mikið á undan-
förnum árum en höfuðborgarsvæðið er eitt atvinnu-, íbúa- og
þjónustusvæði. Að skipta því niður í svona margar einingar
skapar vandamál og er ósanngjarnant, hagkvæmt fyrir suma
en óhagkvæmt fyrir aðra. Það er verið að skapa búsetusvæði
sem eru gerð fyrir hálaunað fólk sem byggir sína paradís á
því að þiggja þjónustu frá fólki sem er ekki jafn ríkt og vel
sett. Þess vegna myndi ég vilja sameina sveitarfélögin til að
skapa meiri jöfnuð og samfélagslega ábyrgð.“
Framboð leyndarmál
En verður Jón Gnarr í framboði fyrir Besta flokkinn næsta vor?
„Það er leyndarmál.“
Ertu búinn að ákveða þig?