Kjarninn - 26.12.2013, Side 59
01/01 kjarninn SJÖ SPURNiNGaR
þ
orgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi
menntamálaráðherra og varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, var ráðin forstöðumaður nýs
mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnu-
lífsins á árinu. Stofnun menntasviðsins var liður
í aukinni áherslu SA á menntamál og nýsköpun.
Hvað er það jákvæðasta sem gerðist á Íslandi árið 2013?
Miðað við hvernig staðan er víða í heiminum – jafnvel enn í Evrópu á
ákveðnum stöðum – voru lýðræðislegar kosningar það jákvæðasta á árinu.
Hvað var það neikvæðasta sem gerðist á Íslandi árið 2013?
tilfinningin eða myndin af auknu andlegu og líkamlegu ofbeldi í samfélaginu.
Hvaða hlutum er brýnast að breyta til að styrkja stöðu
þjóðarinnar og gera samfélagið betra?
Það þarf að koma á stöðugleika á vinnumarkaði og breyta nálgun við gerð
kjarasaminga að hætti norrænu landanna. Hlutverk stjórnvalda er að móta
raunhæfa stefnu í efnahagsmálum, þ.m.t. peningamálastefnu. að ýta
skynsamasta valkostinum út af borðinu með því að slíta aðildarviðræðum við
Evrópusambandið er ekki beint hjálplegt né ber vott um mikla víðsýni.
Hvað er hægt að gera betur – að Mandela gengnum dregst fram eftirsjáin
eftir slíkum einstaklingi hér á Íslandi á síðustu árum. Sem sagt – meira af ást
og kærleika.
Hvernig metur þú stöðu landsins í lok árs, og hvort telur þú að
staða Íslands muni hafa versnað eða batnað í lok árs 2014?
Hvernig við munum standa í árslok 2014 fer eftir gerð kjarasaminga, samning-
um við erlenda kröfuhafa og baráttunni við gjaldeyrishöftin. ég er bjartsýn að
eðlisfari og geri ráð fyrir að einhverju muni þoka áfram en þá skiptir miklu að
stórum málum eins og afnámi gjaldeyrishafta hafi undið fram – ef ekki mun
það þýða hægari efnahagsbata og lokað kerfi næstu árin. Það er ekki fýsilegt
fyrir fólk sem hefur aðhyllst frjálst, opið og markaðsdrifið hagkerfi.
Hvernig stendur ríkisstjórnin sig að þínu mati, hvað hefur hún
gert vel og hvað ekki?
Stefnan um hallalaus fjárlög er það skynsamlegasta sem komið hefur frá
ríkisstjórninni. Síðan hafa jákvæðir tónar verið slegnir til framtíðar á sviði
skólamála, stefna um eflingu og uppstokkun lögregluembætta er mikilvæg og
nálgun á sviði heilbrigðismála hefur verið erfið en hreinskiptin. Fleira mætti
auðvitað nefna. Forsætisráðherra má hæla fyrir að láta ekki slá sig út af laginu
enda næmur á það sem skiptir máli og ekki er verra að hann hefur húmor í
farteskinu.
Ríkisstjórninni er eins og öðrum mislagðar hendur en helst má undirstrika
að hún treystir ekki þjóðinni til að taka ákvörðun um framhald viðræðna við
ESB. Sú afstaða bitnar ekki eingöngu á þjóðinni og komandi kynslóðum heldur
ekki síður á Sjálfstæðisflokknum. Þetta er óskiljanlegt, sér í lagi þegar litið er
til sögu Sjálfstæðisflokkins og forystu hans í utanríkismálum, en flokkurinn
hefur aldrei verið hræddur við að taka samtalið um alþjóða samstarf fyrr en
nú. Þetta, ásamt ýmsum öðrum þáttum, kallar óhjákvæmilega á umræðu
innan flokksins á nýju ári en það er ekki hér til umræðu!
Hvar sérð þú helstu tækifæri Íslands á næsta ári/árum?
tækifærin eru víða og íslensk þjóð hefur sýnt að hún getur tekist á við erfið-
leika og þrengingar. Mestu skiptir að stefnt sé að einföldu og skilvirku stjórn-
kerfi sem veitir atvinnulífinu bæði súrefni og svigrúm til verðmætasköpunar.
Stjórnmálamenn hafa einnig einstakt tækifæri til að stokka upp á ýmsum
sviðum eins og á sviði mennta- og heilbrigðismála með valfrelsi og sveigjan-
leika að leiðarljósi; þótt það kunni að leiða til þess að þeir þurfi tímabundið að
þræða einhver svipugöng.
Er framtíðin björt fyrir land og þjóð?
Ekki spurning. Við höfum bæði samfélagsgrunninn, auðlindirnar og mann-
gerðina til að standa betur að vígi á morgun, eftir viku, ár eða árið 2050. til
þess þarf bæði bjartsýni og kjark til nauðsynlegra breytinga sem skynsamir
stjórnmálamenn, forystufólk í atvinnulífi og aðrir Íslendingar þurfa að leiða
gegn áreiti hinna ýmsu andlita popúlismans.
Deildu með
umheiminum
sjö spurninGar
þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
forstöðumaður mennta- og
nýsköpunarsviðs Samtaka
atvinnulífsins
ríkisstjórnin
treystir ekki
þjóðinni