Kjarninn - 23.01.2014, Blaðsíða 34

Kjarninn - 23.01.2014, Blaðsíða 34
30/33 Kambódía á rið 2014 byrjaði ekki friðsamlega í Kambódíu. Eftir langa baráttu fyrir hækkun lágmarks- launa flykktust þúsundir verkamanna og stuðningsmenn þeirra út á götur Phnom Penh til að mótmæla smánarlegum kjörum og krefj- ast betri vinnuskilyrða fyrir þau hundruð þúsunda verka- manna sem starfa í fataverksmiðjum landsins. Kjarabaráttan endaði í blóðbaði þar sem engum var hlíft fyrir bareflum og byssuskotum brynvarðra herlögreglumanna. Launa kröfurnar eru 160 dollarar í mánaðarlaun, sem samsvarar rúmlega 18.000 íslenskum krónum. hundruð þúsunda krefjast mannsæmandi launa Ofbeldið náði hámarki föstudaginn 3. janúar þegar her- lögreglumenn, vopnaðir AK-47 rifflum, hófu skothríð á hóp af mótmælendum fyrir utan fataverksmiðjuhverfi í útjaðri Phnom Penh. Hiti hafði færst í mótmælin síðan ríkis stjórnin skipaði starfsfólki verksmiðjanna að snúa aftur til vinnu og bannaði frekari verkföll. Aðgerðasinnum, sem börðust gegn vopnuðum lögreglumönnum með steinum og Molotov-kokkteilum, var mætt af hörku. Fjórir mótmælendur voru skotnir til bana, hátt í 40 særðust alvarlega og 23 voru handteknir. Almenningur, alþjóðastofnanir og alþjóðleg mannréttinda samtök hafa fordæmt aðgerðir lögreglunnar og krafist þess að kambódíska ríkisstjórnin vinni að friðsam- legri úrlausn mála. Í opinberri yfirlýsingu frá mannréttinda- samtökunum LICHADO lýsa þau atburðinum sem því ofbeldi sem beitt hafi verið gegn óbreyttum borgurum í Kambódíu í fimmtán ár, eða síðan árið 1998 þegar tugþúsundir samein- uðust á götum úti til að mótmæla umdeildum kosningasigri forsætisráðherrans Hun Sen og flokks hans CPP, sem enn eru við völd. „Þetta var sorglegur dagur. Við [verkalýðshreyfingin] skiljum ekki hvers vegna lögreglan þurfti að beita slíku ofbeldi,“ segir Ath Thorn, talsmaður Coalition of Cambodian Apparel Workers’ Democratic Union (CCAWDU), eins af þeim fimm verkalýðsfélögum sem skipulögðu verkfallið, sem Kambódía Steinunn Jakobsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.