Kjarninn - 23.01.2014, Blaðsíða 55
50/51 pistill
Og það verður ekki tekið hlé í næsta samlestri í Þjóð-
leikhúsinu til að biðja menn um að róa sig aðeins í að dissa
lands byggðina. Þvert á móti má treysta á að því harðari sem
skeytin verða til andstæðingsins, þeim mun ákafara verður
klappið úr baklandinu.
ódýrar vinsældir
Það er hægt að kaupa sér ódýrar vinsældir í þessu umhverfi.
Sífellt fleiri sem tjá sig á opinberum vettvangi virðast hitta
fullkomlega í mark hjá 10% þjóðarinnar en vekja andúð hjá
hinum 90 prósentunum. Og finnst það bara fínt – tíu pró-
senta stuðningur fleytir þér ansi langt áfram þegar enginn
nýtur hvort eð er meirihlutahylli.
Í hruninu sprungu allar brýr í samfélaginu og pólitískir
brúarsmiðir eru ekki eftirsóttir starfskraftar lengur. Fyrir-
bæri í stjórnmálum á borð við ábyrgð, málamiðlanir og að
geta tekið hagsmuni heildarinnar fram yfir aðra og þrengri
hagsmuni soguðust ofan í brimrótið og hafa lítið sem ekkert
sést síðan.
Fljótlegasta leiðin til að komast til áhrifa í þessu umhverfi
er að alhæfa, ryðjast áfram og finna sér óvini sem víðast til
að kenna um. Fyrirvarar eða lausnir sem allir geta fellt sig
við eru lúseratal. Um þetta má finna dæmi hvar sem er á
hinu pólitíska litrófi.
*HWXPYL°WHNL°\õUYHJD°DU¡NYDU°DQLU"
Maður veltir því fyrir sér hvort þjóðin hafi enn eirð í sér til
að taka stórar og erfiðar ákvarðanir.
Aðdragandi þess að íslenska þjóðin tók kristni er merki-
legur í þessu ljósi. Þorgeir Ljósvetningagoði var leiðtogi
heiðinna manna á þinginu en honum var engu að síður falið
að komast að niðurstöðu í málinu. Lausnin, sem hann kynnti
eftir að hafa legið undir feldinum, fól í sér að hans sjónarmið
urðu ekki ofan á, heldur hluti af lausninni.
Ætli við hefðum geð í okkur í dag til þess að taka svo
yfirvegaða ákvörðun? Hvað þá ef annar hópurinn fengi að
ráða niðurstöðunni, að hann myndi fallast á sjónarmið hins?