Kjarninn - 23.01.2014, Blaðsíða 48
43/46 Viðtal
annaðhvort eru í fíkniefnaneyslu eða hafa verið í fíkniefna-
neyslu og við höfum allar rekið okkur á það í kerfinu að þar
er margt sem er ekki nógu gott eða vantar upp á. Foreldrar
þessara barna eru oftast í flækju og vita oft og tíðum ekki
hvert þeir eiga að leita. Við vildum stofna hóp sem myndi
styðja við þá og knýja um leið á úrræði,“ segir Lilja Sigurðar-
dóttir.
Hugmyndin að samtökunum kviknaði árið 2010 en það var
ekki fyrr en á vordögum í fyrra að hópurinn ákvað að lengur
yrði ekki við unað. Það var eftir umfjöllun fjölmiðlamannsins
Jóhannes Kr. Kristjánssonar í apríl, þar sem birtist frásögn
móður sem kvaðst hafa þurft aðstoð handrukkara við að ná
fimmtán ára dóttur sinni út úr dópgreni.
„Þetta er ein skelfilegasta birtingarmynd þess sem við
erum að glíma við. Á meðan börnin okkar fá ekki viðunandi
aðstoð liggja þau útúrdópuð í ógeðslegum dóppartíum. Það
er hræðileg tilhugsun að vita af barninu sínu í slíkum félags-
skap, svo ekki sé talað um ofbeldið sem þau flest þurfa að
upplifa á slíkum stöðum,“ segir Íris.
týndu stúlkurnar mikið áhyggjuefni
Í þriðju útgáfu Kjarnans, sem kom út 5. september í fyrra, var
fjallað um skýrslu greiningardeildar Ríkislögreglustjóra þar
sem kynferðislegt ofbeldi gegn ungum stúlkum sem leiðst
hafa út í fíkniefnaneyslu var gert að sérstöku umfjöllunar-
efni. Var það í fyrsta skiptið sem embættið sá ástæðu til að
minnast sérstaklega á þessa skuggahlið fíkniefnaneyslunnar
hér á landi í skýrslu sinni, sem hefur komið út reglulega
undanfarin ár. Í grein Kjarnans lýsti Ásgeir Karlsson, yfir-
maður Greiningardeildar Ríkislögreglustjóra, því hvern-
ig kornungum stúlkum væri misþyrmt kynferðislega í
fíknefnapartíum þar sem dæmi væru um að margir menn
níddust á sömu stúlkunni á sama tíma.
Þær Lilja og Íris hjá Olnbogabörnum segja dætur sínar
hafa sagt sér frá sambærilegum fíkniefnapartíum, en þær
létu sig oft hverfa svo dögum skipti þegar þær voru í neyslu.
Dætur þeirra beggja hafa blessunarlega snúið við blaðinu.