Kjarninn - 10.04.2014, Blaðsíða 69
60/63 ÍÞróttir
þegið demanta og aðrar gjafir í tengslum við mislukkaða
tilraun Hollendinga að fá að halda Ólympíuleikana árið
1992. Þá var Havelange enn fremur sakaður um að hafa
tryggt ISL markaðsréttindi fyrir
Ólympíuleika. Havelange var jafn-
framt sakaður um að hafa tryggt
sér forsetastól FIFA með því að
míga utan í stórfyrirtæki eins og
Coca-Cola og Adidas til að afla sér
fjár til kosningabaráttunnar.
Í áðurnefndri skýrslu rann-
sóknarnefndar FIFA kemur
fram að Sepp Blatter, forseti
knattspyrnusambandsins, hafi
vitað af einnar milljónar dala
mútugreiðslu til Havelange árið
1997, en Blatter gegndi þá stöðu
framkvæmdasjtóra FIFA. Greiðslan var lögð fyrir mistök inn
á reikning FIFA en nafn Havelange var sett inn sem skýring
fyrir greiðslunni. Blatter er ekki sakaður um að hafa brotið
af sér í starfi með því að koma upp um málið á sínum tíma,
en skýrsluhöfundar komast að þeirri niðurstöðu að vinnu-
brögð Blatter varðandi málið hafi verið klaufaleg. Núverandi
forseti FIFA túlkaði niðurstöðuna á þann veg að með henni
væri hann hvítþveginn af spillingu innan FIFA.
Nokkrum dögum áður en siðanefnd Alþjóða
Ólympíunefndarinnar hugðist rannsaka embættisfærslur
Havelange árið 2011 sagði Brasilíumaðurinn af sér og var þá
rannsóknin látin niður falla.
umdeildar heimsmeistarakeppnir
Í desember árið 2010 tilkynnti FIFA að heimsmeistarakeppn-
in í knattspyrnu árið 2018 yrði haldin í Rússlandi, og sama
keppni árið 2022 myndi fara fram í Katar. Rússland hafði
betur í baráttunni um keppnisréttinn við sameiginleg boð
Spánar og Portúgals, Hollands og Belgíu og England. Katar
hafði betur í samkeppni við boð frá Suður-Kóreu, Japan,
spilltur
Joao Havelange gengur í
flasið á blaðamönnum eftir
að spillingarmál hans voru
gerð opinber. Hann hefur
komist hjá því að vera að fullu
dreginn til ábyrgðar sökum
heilsubrests.