Kjarninn - 10.04.2014, Blaðsíða 64
55/57 fjarskipti
og gagnaflutningatímabilið að taka við. Tíðniheimildir fyrir
3G, fyrstu háhraðakynslóð farsímanetskerfisins, voru boðnar
út í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar netkerfi en
farsímakerfi og gerði gagnaflutning mögulegan. Allt í einu
var mögulegt að hlaða niður tónlist og horfa á kvikmyndir
eða þætti í símanum sínum.
Nú stendur næsti fasi yfir. 4G-væðingin er í fullum gangi.
Skrefið sem verður tekið upp á við með henni er stærra
en margir átta sig á. Hraðinn á 4G-tengingu er tíu sinnum
hraðari en í 3G og um þrisvar sinnum
hraðari en hröðustu ADSL-tengingar.
mun auka notkun á snjalltækjum
Síminn, Nova, Vodafone og 365 miðlar
hafa öll fengið úthlutað tíðni til að byggja
upp 4G-þjónustu. Innleiðing hennar er
þegar hafin og stór svæði á landinu hafa þegar aðgang að
4G-neti fjarskiptafyrirtækjanna.
Innleiðingin mun auka notkun á snjalltækjum til muna,
enda mun hún hafa þau áhrif að notendur geta sótt miklu
meira efni á snjalltækin sín, hvort sem það eru símar, spjald-
tölvur, úr eða annars konar klæðanleg tæknilausn. Neyslu-
mynstur þjóðarinnar mun breytast samhliða þessu. Miklu
meira af fréttum, afþreyingu eða öðru efni sem mögulegt er
að miðla stafrænt verður neytt á snjalltækjum. Og grunnur-
inn er sannarlega til staðar. Í lok árs 2012 átti þriðja hvert
heimili á Íslandi spjaldtölvu samkvæmt neyslu- og lífsstíls-
könnun Capacent. Ári síðar átti annað hvert heimili slíka.
Spjaldtölvum Íslendinga fjölgaði um 21.500 á einu ári.
Snjallsímaeignin er líka orðin nánast almenn. Í könnun
sem MMR gerði í september í fyrra kom fram að tveir af
hverjum þremur Íslendingum ættu snjallsíma. Samkvæmt
upplýsingum frá söluaðilum þessara tækja hefur ekkert
dregið úr hinni hröðu aukningu það sem af er þessu ári. Eftir
að stóru fjarskiptafyrirtækin þrjú undirrituðu samninga
við Apple um að kaupa iPhone-snjallsíma milliliðalaust,
sem lækkaði verðið á þeim um allt að 50 þúsund krónur,
„Hraðinn á 4G-tengingu er
tíu sinnum hraðari en í 3G og
um þrisvar sinnum hraðari en
hröðustu ADSL-tengingar.“