Kjarninn - 10.04.2014, Blaðsíða 45
39/39 spes kjarninn 10. apríl 2014
39/39 spes
spes Furðuleg ummæli forsætisráðherra smáríkis um loftslagsbreytingar vekja athygli
sér tækifæri fyrir þjóðina
vegna náttúruhamfara
u
mmæli forsætisráðherra
Íslands, smáríkis í Norður-
Atlantshafi, í þarlendum
fjölmiðlum á dögunum hafa
vakið athygli á heimsvísu.
Þegar ríkisfjölmiðillinn, RÚV, leitaði
viðbragða forsætisráðherrans við nýrri
skýrslu Loftslagsnefndar Sameinuðu
þjóðanna, þar sem fram kemur að
hnattræn hlýnun muni hafa gríðarlega
alvarlegar afleiðingar fyrir alla jarðarbúa
og þá sérstaklega þá allra fátækustu,
sagðist forsætisráðherrann sjá tækifæri í
hamförunum fyrir þjóð sína.
Í yfirvofandi vatns- og fæðuskorti,
hækkandi matvælaverði, dýrari orku og
aukinni eftirspurn eftir landrými fælust
tækifæri fyrir Íslendinga, ekki síst á sviði
matvælaframleiðslu.
Máli sínu til stuðnings vísaði forsætis-
ráðherrann til kenninga um að á meðan
ríki við miðbaug myndu glíma við mörg
vandamál næstu árin vegna hlýnandi
loftslags myndu þjóðir á norðlægum
slóðum blómstra.
Ummæli forsætisráðherrans vöktu
hörð viðbrögð stjórnarandstöðunnar á
Íslandi, og ekki síst furðu víða um heim.