Kjarninn - 10.04.2014, Blaðsíða 18
15/16 Evrópumál
ráðamenn fengið kynningu á tillögum
Eitt af því sem skýrslur Alþjóðastofnunar og Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands fjalla um er fjármagnshöftin og staða Íslands út frá
utanríkis- og viðskiptapólitískum forsendum í ljósi þeirra.
Þung greiðslubyrði
Greiðslujafnaðarvandi Íslands, það er þung greiðslu-
byrði erlendra skulda þjóðarbúsins á næstu árum,
tengist þessu vandamáli beint, enda erlendir lána-
markaðir erlendis svo gott sem lokaðir fyrir íslenskum
aðilum ennþá.
Í Fjármálastöðugleika, riti Seðlabanka Íslands,
sem kynnt var í gær kemur fram að greiðslujafnaðar-
vandi landsins sé enn alvarlegur og ljóst að við-
skiptajöfnuður landsins dugar að óbreyttu ekki til
þess að framleiða nægilega mikið af gjaldeyri til
þess að mæta greiðslum. Í fyrra mældist undirliggj-
andi viðskiptajöfnuður þjóðarbúsins 82 milljarðar
króna, eða sem nemur 4,6 prósentum. Þetta er mesti
viðskiptajöfnuður frá árinu 2010, og skýrist meðal
annars af öflugri ferðaþjónustu. Þrátt fyrir þetta eru
blikur á lofti, meðal annars vegna óvissu um hvernig
unnið verður úr eignum þrotabúa föllnu bankanna.
Samkvæmt Fjármálastöðugleika er uppfært mat á
krónueign föllnu bankanna nú 497 milljarðar króna,
og hefur farið hækkandi undanfarin misseri.
Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur lítill hópur
ráðamanna landsins fengið kynningu frá sérfræðinga-
hópi stjórnvalda um afnám hafta á mögulegum
leiðum út úr vandanum. Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra og Már Guðmundsson seðlabankastjóri
eru þar á meðal og hafa þeir allir fengið kynningu á
skýrslu hópsins og vinnu hans. Þá átti hópurinn fund
með slitastjórn Glitnis síðastliðinn föstudag, þar sem
skipst var á upplýsingum og málin rædd án þess að
skýrt hafi komið fram hvaða leiðir yrðu ræddar.
Ekki nauðasamningsleið
Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur hópurinn
talað fyrir því að farin verði gjaldþrotaleið með búin
fremur en nauðasamningsleið, það er að búin greiði
út í krónum og að búunum verði slitið. Endanleg
útfærsla verður þó í höndum ráðamanna þjóðarinnar,
stjórnvalda og seðlabankans, og að einhverju leyti
háð ytri efnahagslegum aðstæðum. Eitt af því sem
horfa þarf til í þessum efnum er framtíðarskipan
fjármála kerfisins, það er að stefna um eignarhald á
endurreistu bönkunum þremur, Arion banka, Íslands-
banka og Landsbankanum, þarf að liggja fyrir þegar á
endanum verður ráðist í aðgerðir.
Útfærslan þarf að samræmast íslenskum rétti og
hefur hópurinn horft til þess að ekki þurfi að koma
til sérstakra lagabreytinga vegna þessa, þar sem slíkt
gæti styrkt málstað kröfuhafa sem fastlega er búist
við að muni bregðast við af hörku ef þessi leið verður
farin, þar sem leiðin myndi þýða verulega rýrnun á
eignum fyrir kröfuhafa og gera þeim erfiðara um vik
að komast með eignir í erlendri mynt frá landinu.
Í sérfræðingahópnum, sem hefur lokið störfum,
eiga sæti Sigurbjörn Þorkelsson, Jón Helgi Egilsson,
Ragnar Árnason, Reimar Pétursson, Jón Birgir Jóns-
son og Eiríkur Svavarsson.
Pólitískur samráðshópur um afnám hafta hefur
ekki enn fengið kynningu á vinnu sérfræðingahóps-
ins. Þingmenn sem eiga sæti í hópnum hafa skrifað
undir eið þess efnis að þeir láti ekki upplýsingar til
þriðja aðila um mál sem snúa að afnámi hafta.