Kjarninn - 10.04.2014, Page 18

Kjarninn - 10.04.2014, Page 18
15/16 Evrópumál ráðamenn fengið kynningu á tillögum Eitt af því sem skýrslur Alþjóðastofnunar og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands fjalla um er fjármagnshöftin og staða Íslands út frá utanríkis- og viðskiptapólitískum forsendum í ljósi þeirra. Þung greiðslubyrði Greiðslujafnaðarvandi Íslands, það er þung greiðslu- byrði erlendra skulda þjóðarbúsins á næstu árum, tengist þessu vandamáli beint, enda erlendir lána- markaðir erlendis svo gott sem lokaðir fyrir íslenskum aðilum ennþá. Í Fjármálastöðugleika, riti Seðlabanka Íslands, sem kynnt var í gær kemur fram að greiðslujafnaðar- vandi landsins sé enn alvarlegur og ljóst að við- skiptajöfnuður landsins dugar að óbreyttu ekki til þess að framleiða nægilega mikið af gjaldeyri til þess að mæta greiðslum. Í fyrra mældist undirliggj- andi viðskiptajöfnuður þjóðarbúsins 82 milljarðar króna, eða sem nemur 4,6 prósentum. Þetta er mesti viðskiptajöfnuður frá árinu 2010, og skýrist meðal annars af öflugri ferðaþjónustu. Þrátt fyrir þetta eru blikur á lofti, meðal annars vegna óvissu um hvernig unnið verður úr eignum þrotabúa föllnu bankanna. Samkvæmt Fjármálastöðugleika er uppfært mat á krónueign föllnu bankanna nú 497 milljarðar króna, og hefur farið hækkandi undanfarin misseri. Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur lítill hópur ráðamanna landsins fengið kynningu frá sérfræðinga- hópi stjórnvalda um afnám hafta á mögulegum leiðum út úr vandanum. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra og Már Guðmundsson seðlabankastjóri eru þar á meðal og hafa þeir allir fengið kynningu á skýrslu hópsins og vinnu hans. Þá átti hópurinn fund með slitastjórn Glitnis síðastliðinn föstudag, þar sem skipst var á upplýsingum og málin rædd án þess að skýrt hafi komið fram hvaða leiðir yrðu ræddar. Ekki nauðasamningsleið Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur hópurinn talað fyrir því að farin verði gjaldþrotaleið með búin fremur en nauðasamningsleið, það er að búin greiði út í krónum og að búunum verði slitið. Endanleg útfærsla verður þó í höndum ráðamanna þjóðarinnar, stjórnvalda og seðlabankans, og að einhverju leyti háð ytri efnahagslegum aðstæðum. Eitt af því sem horfa þarf til í þessum efnum er framtíðarskipan fjármála kerfisins, það er að stefna um eignarhald á endurreistu bönkunum þremur, Arion banka, Íslands- banka og Landsbankanum, þarf að liggja fyrir þegar á endanum verður ráðist í aðgerðir. Útfærslan þarf að samræmast íslenskum rétti og hefur hópurinn horft til þess að ekki þurfi að koma til sérstakra lagabreytinga vegna þessa, þar sem slíkt gæti styrkt málstað kröfuhafa sem fastlega er búist við að muni bregðast við af hörku ef þessi leið verður farin, þar sem leiðin myndi þýða verulega rýrnun á eignum fyrir kröfuhafa og gera þeim erfiðara um vik að komast með eignir í erlendri mynt frá landinu. Í sérfræðingahópnum, sem hefur lokið störfum, eiga sæti Sigurbjörn Þorkelsson, Jón Helgi Egilsson, Ragnar Árnason, Reimar Pétursson, Jón Birgir Jóns- son og Eiríkur Svavarsson. Pólitískur samráðshópur um afnám hafta hefur ekki enn fengið kynningu á vinnu sérfræðingahóps- ins. Þingmenn sem eiga sæti í hópnum hafa skrifað undir eið þess efnis að þeir láti ekki upplýsingar til þriðja aðila um mál sem snúa að afnámi hafta.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.