Kjarninn - 10.04.2014, Blaðsíða 47
41/42 álit
og áskrift út á þjónustu sína sem raunverulega grundvallast
á þessu efni. Netveitur og tæknifyrirtæki selja síðan aug-
lýsingar til að fjármagna leit, vistun og flutning á efninu og
hafa af því miklar tekjur, án þess að greiða endurgjald fyrir.
Á þennan hátt hefur orðið til viðskiptamódel sem veltir
tugum milljarða hér í okkar litla hagkerfi og ótrúlegum
tölum á heimsvísu, án þess að þeir sem framleiða efnið fái
endurgjald fyrir. Það getur varla talist sanngjarnt að það sé
þeirra að gefa sínar afurðir?
Háværar raddir eru um að kvikmynda-
og tónlistargreinarnar hafi ekki brugðist
við þessum nýja veruleika með því að bjóða
efnið sitt á rafrænu formi til neytenda,
þegar og þar sem þeim hentar. En er það
virkilega sanngjörn krafa á höfunda efnis
að finna upp og þróa tæknikerfi og veitur
sem tryggir þeim sanngjarnt endurgjald?
Er það ekki eðlilegri krafa að þau fyrirtæki
sem finna upp, þróa og markaðssetja nýja
tækni, og fá í dag efnið til þess frítt, þrói í
viðskipta módelum sínum leiðir til að tryggja
höfundarréttarhöfum greiðslu fyrir sitt efni?
Í allri þessari dreifingu efnisins er
hægt að mæla áhorf, niðurhal og fjölmargt
annað. Allar athafnir okkar á netinu eru
vaktaðar og skráðar í gagnagrunna tækni-
fyrirtækjanna (og annarra eins og NSA). Þannig hefur þetta
verið frá fyrstu dögum netsins.
Því hefur verið haldið fram að persónuvernd sé undir
við það að nýta þessar upplýsingar til að tryggja eigendum
höfundarréttarvarins efnis endurgjald fyrir not á verkum
þeirra. Með slíkum málflutningi eru þeir hinir sömu í
raun að fara gegn því frelsi sem þeir krefjast, því ef virða á
persónuverndina þyrfti að loka veitum eins og Google, Yahoo
og öðrum slíkum, en þar er safnað ógrynni af upplýsingum
um netnotkun okkar og hegðun.
Að sjálfsögðu eiga sömu lögmál að gilda í netheimum
„Í nýrri könnun
Capacent um neyslu
á kvikmynduðu
efni kemur í ljós
að um 80% Ís-
lendinga á aldrinum
16-24 ára hlaða
niður kvikmynda-
efni. Slíkt hlutfall
er óþekkt með
öllu í nágranna-
löndum okkar.“