Kjarninn - 10.04.2014, Page 47

Kjarninn - 10.04.2014, Page 47
41/42 álit og áskrift út á þjónustu sína sem raunverulega grundvallast á þessu efni. Netveitur og tæknifyrirtæki selja síðan aug- lýsingar til að fjármagna leit, vistun og flutning á efninu og hafa af því miklar tekjur, án þess að greiða endurgjald fyrir. Á þennan hátt hefur orðið til viðskiptamódel sem veltir tugum milljarða hér í okkar litla hagkerfi og ótrúlegum tölum á heimsvísu, án þess að þeir sem framleiða efnið fái endurgjald fyrir. Það getur varla talist sanngjarnt að það sé þeirra að gefa sínar afurðir? Háværar raddir eru um að kvikmynda- og tónlistargreinarnar hafi ekki brugðist við þessum nýja veruleika með því að bjóða efnið sitt á rafrænu formi til neytenda, þegar og þar sem þeim hentar. En er það virkilega sanngjörn krafa á höfunda efnis að finna upp og þróa tæknikerfi og veitur sem tryggir þeim sanngjarnt endurgjald? Er það ekki eðlilegri krafa að þau fyrirtæki sem finna upp, þróa og markaðssetja nýja tækni, og fá í dag efnið til þess frítt, þrói í viðskipta módelum sínum leiðir til að tryggja höfundarréttarhöfum greiðslu fyrir sitt efni? Í allri þessari dreifingu efnisins er hægt að mæla áhorf, niðurhal og fjölmargt annað. Allar athafnir okkar á netinu eru vaktaðar og skráðar í gagnagrunna tækni- fyrirtækjanna (og annarra eins og NSA). Þannig hefur þetta verið frá fyrstu dögum netsins. Því hefur verið haldið fram að persónuvernd sé undir við það að nýta þessar upplýsingar til að tryggja eigendum höfundarréttarvarins efnis endurgjald fyrir not á verkum þeirra. Með slíkum málflutningi eru þeir hinir sömu í raun að fara gegn því frelsi sem þeir krefjast, því ef virða á persónuverndina þyrfti að loka veitum eins og Google, Yahoo og öðrum slíkum, en þar er safnað ógrynni af upplýsingum um netnotkun okkar og hegðun. Að sjálfsögðu eiga sömu lögmál að gilda í netheimum „Í nýrri könnun Capacent um neyslu á kvikmynduðu efni kemur í ljós að um 80% Ís- lendinga á aldrinum 16-24 ára hlaða niður kvikmynda- efni. Slíkt hlutfall er óþekkt með öllu í nágranna- löndum okkar.“

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.