Kjarninn - 05.06.2014, Page 12
09/13 UmhverFismáL
lyktarmengunar, skal fyrirtækið leita leiða til að leysa vanda-
málið í samráði við heilbrigðiseftirlitið. Halda skal loftmengun
þannig í lágmarki og viðhalda þeim gæðum sem felast í hreinu
og ómenguðu lofti.“
Ljóst er að loftmengun, sérstaklega vegna brennisteinsvetnis,
hefur ekki verið haldið í lágmarki. Mælingar í næsta nágrenni
virkjunarinnar og á höfuðborgarsvæðinu sýna að loftmengunin
er oft yfir heilsuverndarmörkum. Sú aðferð sem Orkuveita
Reykjavíkur ætlar að nota til að draga úr menguninni, niður-
dæling, hefur nefnilega enn ekki komist almennilega í gagnið.
Það kemur á óvart því að í áliti Skipulagsstofnunar um mat á
umhverfisáhrifum vegna Hverahlíðarvirkjunar, sem átti að rísa
í námunda við Hellisheiðarvirkjun, og er dagsett 19. maí 2008
er vikið sérstaklega að brennisteinsvetnismengun. Þar segir
að „í kjölfar umsagna og athugasemda við frummatsskýrslur
Hverahlíðar- og Bitruvirkjunar hefur Orkuveita Reykjavíkur
ákveðið að grípa til aðgerða vegna losunar á brennisteinsvetni
frá virkjunum á Hengilssvæðinu ... Hentugast miðað við að-
stæður er talið vera að leysa brennisteinsvetni upp í vatni og
blanda við skiljuvatn í niðurrennslisholum þar sem þrýstingur
er nægjanlegur til að halda gasi á uppleystu formi. Þessi aðferð
verður prófuð í tilraunarstöð sem verður komið upp við Hell-
isheiðarvirkjun og er gert ráð fyrir að hún verði komin í rekstur
um mitt ár 2008“. Síðan eru liðin sex ár.