Kjarninn - 05.06.2014, Side 20
15/18 viðskipti
h
lutabréfamarkaðurinn er farinn að mótast
verulega af fjármagnshöftum og þeirri stað-
reynd að kostir á fjármálamarkaði eru fáir.
Velta með hlutabréf dróst verulega saman
milli mánaða sé mið tekið af tölum sem
Nasdaq OMX tók saman í mánaðarlegu yfirliti sínu fyrir
kauphallir á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Í maí-
mánuði nam velta með hlutabréf í kauphöllinni hér á landi
22,3 milljörðum, sem er 34 prósentum minni velta en var í
aprílmánuði og 42 prósentum minni velta en í sama mánuði
í fyrra.
minni velta en vaxandi markaðsvirði
Þrátt fyrir að velta hafi verið töluvert minni í viðskiptum
með hlutabréf hefur markaðsvirði félaga í kauphöllinni
haldið áfram að hækka undanfarið ár. Markaðsvirði þeirra
18 félaga sem eru með skráð hlutabréf í kauphöllinni, bæði
á Aðalmarkaði og á First North, nemur nú 593 milljörðum
króna, eða sem nemur tæplega þriðjungi
af árlegri landsframleiðslu Íslands. Á
sama tíma í fyrra nam markaðsvirði
skráðra félaga 473 milljörðum og hefur
markaðsvirði skráðra félaga því aukist
um 120 milljarða á einu ári. Munar þar
ekki síst um skráningu Granda, en við-
skipti með hlutabréf félagsins hófust 25. apríl síðastliðinn. Sú
skráning hefur reyndar dregið dilk á eftir sér og hefur Páll
Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, harðlega gagnrýnt
hvernig að skráningunni var staðið, þar sem fölsk kauptilboð
voru sett inn þegar félagið var skráð. Við þau var ekki staðið
þegar á hólminn var komið og nam umfang þessara fölsku
viðskipta 5,7 prósentum af heildarhlutafé. Margir hluthafar
urðu reiðir yfir þessu og hafa kvartanir vegna þessa borist
til Kauphallarinnar og FME. Páll sagði í samtali við Stöð 2,
sem fjallaði ítarlega um málið, að full ástæða væri til þess að
kanna hvort lög hefðu verið brotin með þessu.
viðskipti
Magnús Halldórsson
L@maggihalld
„Vaxtarmöguleikar eru
litlir sem engir en stöðugur
rekstur sem skilar hlut-
höfum arði er fyrir hendi.“