Kjarninn - 05.06.2014, Síða 34

Kjarninn - 05.06.2014, Síða 34
26/28 eFNahagsmáL Þ að eina prósent landsmanna sem var með hæstu heildartekjurnar á árinu 2012 áttu samtals 229,5 milljarða króna. Hópurinn skuldaði 37,4 milljarða króna og því var hrein eign hans 192,1 milljarður króna. Alls var hrein eign landsmanna allra, eignir að frádregnum skuldum, 2.075,5 milljarðar króna í lok árs 2012 og því átti efsta eina prósentið tæplega tíu prósent af hreinni eign landsmanna. Þetta eina prósent á líka langmest af reiðufé. Alls á það 86,3 milljarða króna í innlendum innstæðum, eða 19 prósent allra slíkra, og 5,6 milljarða króna í uppgefnum erlendum innistæðum, eða 64 prósent allra erlendra innstæðna sem Íslendingar skrá í skattframtalin sín. í fyrsta sinn sem svona upplýsingar eru aðgengilegar Þetta kemur fram í skattatölfræði Ríkisskattstjóra þar sem eignum heimila í landinu er skipt niður eftir tekjuhópum. Upplýsingarnar byggja á skattaframtölum einstaklinga og samskattaðra (sambýlisfólks eða hjóna) og miða við stöðu gagna strax að loknum framtalsskilum vegna ársins 2012. Að baki tölunum eru um 246.600 manns. Þær voru nýverið birtar á heimasíðu Ríkisskattstjóra. Um er að ræða nýjustu tölur sem hægt er að nálgast sem byggja á skattframtölum. Í skjalinum sem embætti ríkis- skattstjóra birti fyrir skemmstu er í fyrsta sinn hægt að sjá hvað hvert prósent landsmanna á og skuldar. Áður var einung- is hægt að sjá þær niðurstöður í fimm prósenta hlutfalls bilum. Því er þetta í fyrsta sinn sem hægt er að segja til um eign þess prósents landsmanna sem er með hæstu launin. Dregið úr ójöfnuði frá hámarki góðærisins Landsmenn áttu alls eignir upp á 3.860,5 milljarða króna í lok ársins 2012. Þær höfðu aukist töluvert á milli ára, en voru 3.466 milljarðar króna í lok ársins á undan. Aukningin nemur alls 394,5 milljörðum króna, eða 11,4 prósentum. Skuldir lækkuðu að sama skapi umtalsvert, að öllum líkindum vegna sértækra skuldaúrræða og dóma vegna ólöglegra lána. Í eFNahagsmáL Þórður Snær Júlíusson L @thordursnaer „Því á það eina prósent sem er með hæstu launin jafn mikið í hreinni eign og þau 17 prósent sem fá minnst í budduna um hver mánaðamót.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.