Kjarninn - 05.06.2014, Qupperneq 34
26/28 eFNahagsmáL
Þ
að eina prósent landsmanna sem var með hæstu
heildartekjurnar á árinu 2012 áttu samtals
229,5 milljarða króna. Hópurinn skuldaði 37,4
milljarða króna og því var hrein eign hans 192,1
milljarður króna. Alls var hrein eign landsmanna
allra, eignir að frádregnum skuldum, 2.075,5 milljarðar króna
í lok árs 2012 og því átti efsta eina prósentið tæplega tíu
prósent af hreinni eign landsmanna.
Þetta eina prósent á líka langmest af reiðufé. Alls á það
86,3 milljarða króna í innlendum innstæðum, eða 19 prósent
allra slíkra, og 5,6 milljarða króna í uppgefnum erlendum
innistæðum, eða 64 prósent allra erlendra innstæðna sem
Íslendingar skrá í skattframtalin sín.
í fyrsta sinn sem svona upplýsingar eru aðgengilegar
Þetta kemur fram í skattatölfræði Ríkisskattstjóra þar sem
eignum heimila í landinu er skipt niður eftir tekjuhópum.
Upplýsingarnar byggja á skattaframtölum einstaklinga og
samskattaðra (sambýlisfólks eða hjóna) og miða við stöðu
gagna strax að loknum framtalsskilum vegna ársins 2012. Að
baki tölunum eru um 246.600 manns. Þær voru nýverið birtar
á heimasíðu Ríkisskattstjóra.
Um er að ræða nýjustu tölur sem hægt er að nálgast sem
byggja á skattframtölum. Í skjalinum sem embætti ríkis-
skattstjóra birti fyrir skemmstu er í fyrsta sinn hægt að sjá
hvað hvert prósent landsmanna á og skuldar. Áður var einung-
is hægt að sjá þær niðurstöður í fimm prósenta hlutfalls bilum.
Því er þetta í fyrsta sinn sem hægt er að segja til um eign þess
prósents landsmanna sem er með hæstu launin.
Dregið úr ójöfnuði frá hámarki góðærisins
Landsmenn áttu alls eignir upp á 3.860,5 milljarða króna í
lok ársins 2012. Þær höfðu aukist töluvert á milli ára, en voru
3.466 milljarðar króna í lok ársins á undan. Aukningin nemur
alls 394,5 milljörðum króna, eða 11,4 prósentum. Skuldir
lækkuðu að sama skapi umtalsvert, að öllum líkindum vegna
sértækra skuldaúrræða og dóma vegna ólöglegra lána. Í
eFNahagsmáL
Þórður Snær Júlíusson
L @thordursnaer
„Því á það eina
prósent sem
er með hæstu
launin jafn mikið
í hreinni eign og
þau 17 prósent
sem fá minnst í
budduna um hver
mánaðamót.“