Kjarninn - 05.06.2014, Page 61
52/55 pistiLL
m
ig langar í blómahjólið, sagði þriggja ára
sonur minn í hjólabúð þar sem við mæðginin
vorum stödd fyrir nokkrum dögum.
Nei, viltu ekki frekar bláa hjólið með fisk-
unum? spurði ég í skringilega skipandi tón.
Nei, bara blómahjólið, sagði hann einlægur og benti á
ljósfjólublátt hjól, skreytt rauðum blómum.
En sjáðu hvað bláa hjólið er flott, vældi ég. Það er Bubba-
Byggis-bjalla á því!
Mig langar í blómahjólið, ítrekaði hann og greip utan um
stýrið á því, líkt og hann ætlaði að hlekkja sig fastan við það.
Mér var hætt að standa á sama, fyrr í vikunni hafði ég ætlað
að kaupa bláa gúmmískó á hann en endað á því að leiða hann
hamingjusaman út í pastelgrænum gúmmískóm með skær-
bleikum röndum á hliðunum. Sko ... byrjaði ég en þaggaði
niður í sjálfri mér í tæka tíð. Það hefði lítið upp á sig að segja
þriggja ára barni frá því að ég hefði lesið frétt um lítinn
strák í útlöndum sem safnaði rauðum og ljósfjólubláum
ég er karl frekar en
framsóknarkona
Auður Jónsdóttir rithöfundur fjallar um útlendinga og Íslendinga, pólitík og kosningar.
pistiLL
auður jónsdóttir
rithöfundur