Kjarninn - 05.06.2014, Page 72
03/08 tÓNList
mogwai
Skosku síðrokkararnir í
Mogwai hafa verið að í
tæpa tvo áratugi og hafa
þeir sent frá sér samtals
átta breiðskífur. Fyrsta
breiðskífa þeirra, Young
Team, og safnskífan
Ten Rapid ollu miklum
straumhvörfum þegar þær
komu út árið 1997. Tónlist
Mogwai er í grunninn hæg-
fara samsuða af draum-
kenndri nýbylgju, naum-
hyggjulegu síðpönki og
hnausþykku þungarokki.
Lög þeirra eru oftar en
ekki án söngs en í gegnum
tíðina hafa þeir þó notið
aðstoðar söngvara á borð
við Iggy Pop, Gruff Rhys
úr Super Furry Animals
og Aidan Moffat úr Arab
Strab.
swans
Swans eru ólíkindatól
og stórmerkileg sveit.
Sveitina stofnaði söngvar-
inn og aðaldriffjöðurin
Michael Gira fyrir rúmum
þremur áratugum í New
York. Hljómsveitin var
hluti hinnar svokölluðu
no wave senu sem getið
hefur af sér Sonic Youth og
tónskáldin Glenn Branca
og Arto Lindsay. Fyrstu
útgáfur sveitarinnar voru
ómstríðar og ögrandi og
þykja jafnvel enn. Eitt af
markmiðum sveitarinnar
í byrjun var að meiða fólk
með tónlistinni og voru
tónleikar hennar með þeim
háværari sem tíðkuðust.
Swans hefur starfað í
tveimur hollum og rann
það fyrra sitt skeið árið
1997. Árið 2010 sneri Swans
aftur, hefur aldrei verið
betri og er nýjasta breið-
skífan To Be Kind hreint
afbragð.
shellac
Shellac er naumhyggjulegt
rokktríó sem hefur starfað
hægt en örugglega frá
árinu 1992 og eru meðlimir
þess upptökustjórarnir
Steve Albini og Bob Weston
og trymbillinn Todd
Trainer. Hljómsveitin
hefur gefið út fjórar
breiðskífur og þó nokkuð
af smáskífum á sínum ferli.
Allir hafa þeir verið virkir
í neðanjarðarsenu Banda-
ríkjanna síðan á níunda
áratugnum og hafa ávallt
lagt mikið kapp á að starfa
ekki samkvæmt leikreglum
tónlistarbransans.