Kjarninn - 05.06.2014, Page 73
04/08 tÓNList
kurt vile
Kurt Vile hefur notið
mikillar hylli fyrir síðustu
tvær breiðskífur sínar,
Smoke Ring for My Halo
og Wakin on a Pretty Daze.
Kurt er tónlistarmaður,
laga höfundur og upptöku-
stjóri frá Philadelphia
og hefur verið að fást við
tónlist af einhverri alvöru
frá árinu 2003. Þó svo að
síðustu tvær breiðskífur
hans hafi náð eyrum
fjöldans eru fyrri verk
hans hreint afbragð og
þá sérstaklega Childish
Prodigy frá árinu 2009 og
Constant Hitmaker frá
árinu 2008. Tónlist Kurts
er glettilega tímalaus sver
sig í ætt við tónlistarmenn
á borð við Tom Petty, John
Fahey, Lou Reed, Pavement
o.s.frv. Til gamans má geta
þess að hann og vinur hans
Adam Granduciel stofnuðu
hljómsveitina The War on
Drugs sem spilar á Iceland
Airwaves í ár.
Loop
Loop er önnur endurkomu-
hljómsveit af þremur sem
koma fram á hátíðinni í
ár. Loop var stofnuð um
miðjan níunda áratuginn
í suðurhluta London af
Robert nokkrum Hampson.
Fyrir tónsmíðar sínar sótti
sveitin innblástur til sveita
á borð við Can, The Stooges
og Suicide svo einhver
dæmi séu tekin. Robert
heimsótti Ísland árið 2006
og hélt m.a. eftirminnilega
tónleika í Klink & Bank
undir listamannsnafninu
Main.
Low
Low hefur áður sótt Ísland
heim og spilaði sællar
minninga ásamt Sigur
Rós í Háskólabíói síðla árs
1999. Low er frá Duluth í
Minnesota og er sveitin
leidd af hjónunum Alan
Sparhawk og Mimi Parker.
Eitt af aðals merkjum Low
er samhljóma söngur
þeirra hjóna og hefur
áreynslulaus tónlistar-
flutningurinn oft yljað á
nöprum síðkvöldum.