Kjarninn - 05.06.2014, Page 74
05/08 tÓNList
portishead
Portishead er eitt af
stærstu númerum há-
tíðarinnar í ár og er hún
hljómsveitin sem hvað
flestir landsmenn þekkja.
Hljómsveitin reis hátt í
árdaga trip hop-bylgjunnar
í byrjun tíunda áratugar
síðustu aldar, sem gat
einnig af sér tónlistar-
mennina Massive Attack,
Morcheeba, Goldfrapp og
Tricky. Portishead hefur
þó ekki fest sig innan trip
hop-stefnunnar og á þriðja
breiðskífa hennar, Third,
meira sameiginlegt með
tilraunakenndari rokk-
sveitum á borð við Silver
Apples, Neu! og SUNN 0)))
en nokkurn tímann Tricky
eða Massive Attack.
slowdive
Margir bíða spenntir eftir
tónleikum ensku hljóm-
sveitarinnar Slowdive,
sem lagði upp laupana
árið 1995. Hljómsveitin
var stofnuð í Reading í
lok níunda áratugarins og
reis hátt á sama tíma og
hljómsveitirnar My Bloody
Valentine, Swervedriver,
Ride og Blur voru að ryðja
sér til rúms. Slowdive gaf
út þrjár afbragðsskífur
áður en hún lagði upp
laupana.
Fuck Buttons
Fuck Buttons er raftón-
listartvíeyki frá Bristol
í Englandi og sótti hún
Ísland heim árið 2008 þar
sem hún spilaði á Iceland
Airwaves. Dúettinn skipa
þeir Andrew Hung og
Benjamin John Power og
eru tónleikar þeirra mikil
veisla fyrir bæði augu og
eyru. Tónlistarmiðillinn
Pitchfork líkti tónlist
þeirra við sólarupprás þar
sem sólin springur þegar
hún er komin hátt á loft.
Breiðskífur þeirra þrjár eru
allar hreint afbragð.