Kjarninn - 05.06.2014, Page 80
03/04 MarkaðsMÁl
Varamannabekkurinn
Meðal helstu innihaldsefna í hinni klassísku HM-auglýsingu er
hádramatísk tónlist með fiðlum, myndataka með hraðbreytingum
og stórstjörnur. Stórstjörnurnar eru ekki bara inni á vellinum heldur
hafa margir heimsfrægir leikstjórar spreytt sig á forminu. Hér sjáum
við Platoon- og Wall Street-leikstjórann Oliver Stone í auglýsingu
fyrir sjónvarpsstöðina DirecTV. Virðingarverð tilraun til að taka
formið lengra, en lokaniðurstaðan er stíf og þvinguð.
Adidas er meðal aðalstyrktaraðila keppninnar og skaffar meðal
annars boltann, sem verður hefðinni samkvæmt umdeildur. Leik-
menn munu að öllum líkindum kvarta undan því að hann fljóti ekki
rétt og að hann sé of léttur. Þetta skiptið er Adidas líka með gríðar-
stóra herferð í gangi sem heitir All in or Nothing, þar sem Messi er
aðalstjarnan.
Auglýsingin er metnaðarfull og henni fylgja ótal styttri auglýs-
ingar sem birtar verðar á YouTube í takt við framvindu keppninnar.
Það var brasilíski leikstjórinn Fernando Meirelles sem leikstýrði
auglýsingunni, en hann er helst frægur fyrir myndina Borg Guðs frá
árinu 2002. Sjálfur Kanye West samdi lagið. Hér er gert út á kvíða
stórstjörnunnar fyrir mótið. Andstæðingar Messi birtast honum
í martraðarkenndum draumi. Þessi nálgun er hvorki ný né hefur
Meirelles tekist sérstakega vel upp með að vinna úr efniviðnum. Það
er ekkert nýtt að gerast í myndatökunni, lagið frá Kanye er slappt og
hlekkirnir í auglýsingunni vísa ekki á neitt skemmtilegt heldur fara
með áhorfandann beint í vefverslun. Adidas kemst ekki í byrjunar-
liðið þrátt fyrir hafa mætt á allar æfingarnar og lagt mikið á sig.
Þegar fjármálastofnanir hafa ekkert að segja en eiga fullt af
pening er líkingamálið og tölvubrellurnar aldrei langt undan. Takið
sérstaklega eftir öllum skotunum af fólki að horfa. Þetta er nálgun
sem við þekkjum úr óteljandi auglýsingum en hér er þemað tekið
alla leið í auglýsingu fyrir Itaú, banka keppninnar. Þessi auglýsing
kemur ekki af varamannabekknum nema einhver í byrjunarliðinu
fótbrotni.