Kjarninn - 05.06.2014, Page 82
01/03 kjaFtæði
s
umir hlutir fást ekki í Krónunni, þannig að ég
fór yfir götuna í Bónus til að finna þá um daginn.
Ég var svolítið pirraður af því að 45 mínútna
Krónuferð var að baki og hún hafði gengið
brösuglega af því að þeir voru nýbúnir að breyta
uppsetningu verslunarinnar. Sólin var lágt á lofti þannig að
ég sá ekkert út um bílrúðuna, það gekk illa að finna stæði
og ég þurfti á klósettið (sæll, Þorgrímur Þráinsson). Ég þekki
Bónus verslunina auðvitað ennþá minna en Krónuverslunina
þannig að ég var heila eilífð að leita að því sem mig vantaði.
Fann það auðvitað ekki, þannig að ég gerði mig tilbúinn til
að fara út úr versluninni (og við vitum öll hvað það er auðvelt
að fara út úr matvöruverslun án þess að kaupa neitt!). Þá
stoppaði ég af því að ég sá að Francisca var að vinna.
Ahhh, Francisca. Við elskum hana öll; geðþekku
verslunar konuna sem hefur brætt hjörtu viðskiptavina
Bónuss, kom fram í Áramótaskaupinu og fékk fullt af far-
tölvum handa fjölskyldunni sinni í Sambíu fyrir góðvild sína.
Ég verð að kaupa eitthvað, bara til að fá afgreiðslu hjá henni.
Það er það sem ég þarf. Ég þarf brosið hennar og vinsamlegu
kveðjuna til að bjarga þessari ömurlegu verslunarferð.
:D
Konráð Jónsson segist sjaldan líða jafn illa og þegar hann reynir að vera hress.
kjaFtæði
konráð jónsson
lögmaður