Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 11

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 11
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 153 S í m o n D a I. Saga eftir Anthony Hope. III. KAPITULI. Hljóma/)' heimsins. Eg býst ekki við að þessar ástaraunir mínar hafi í raun og veru fengið minna á mig en svo margan annan, sem lengur virðist búa að slíku. En atvikin, eins og þau komu, beindu huga mínum í aðra átt. Eg komst alveg óvænt inn á braut, sem gladdi móður mína og prestinn. Hún sá í því sem gerðist himneska forsjón, er stefndi að því að koma fótum undir ætt- ina aftur, og hann var ekki í vafa um, að nú væri spádómur Betty gömlu að byrja að rætast. Fyrir meira en fjörutíu árum síðan hafði föðurbróðir móður minnar sezt að í Norwich og komið þar ullarverksmiðju á. fót; og þar sem hann altaf stöðugt hafði þann sannleik fyrir augum, að at- vinna vefara væri að framleiða klæði fyrir fólkið fremur en að hugsa fyrir Það, þá hafði honum jafnan tekist að lifa friðsömu lífi og að raka saman fé á at- vinnu sinni. — Hann hafði hvorki haft tíma né löngun til að gifta sig, og er ellin nú færðist yfir hann fanst honum hann vera fremur einmana, þess vegna bauðst hann nú til að taka mig að sér og gera mig einkaerfingja að miklum hluta eigna sinna, ef eg sýndi að eg væri umhyggju hans verðugur. f^að sem hann heimtaði af mér var enganveginn óframkvæmanlegt, en mér engu að síður fremur óljúft. Hann setti sem skilyrði, að eg í staðinn fyrir að leita gæfunnar í Lundúnum, yrði að koma til Norwich og gera honum elliárin léttbær- aii með nærveru minni, kvaðst hann vilja kenna mér iðn sína og jafnframt manna siði, eins og hann komst að orði. Það varð því úr að eg fór til Norwich og þar dvaldi eg nærfelt þrjú ár. Eg reyndi auðvitað að gera frænda mínum alt til ánægju, en þess á milli reyndi eg einnig að njóta lífsins í þessari miklu borg, sem í raun og sannleika hefði verið meira en íiógu stór fyrir hvern og einn, er ekki gekk þungaður með draumórum mínum. En sannleikurinn er sá að draumórar og æskuþrár eru órólegir hvílunautar, og eg verð að játa, að eg all- an tímann, sem eg dvaldi í Norwich, var egeins og fsraelsbörn í eyðimörkinni ;allar hugsanir mínar snerust um hið fyrir- heitna land, og eg hafði enga eirð. Eg býst við, að eg geti kent þessu sálará- standi mínu um, að eg hefi svo fáar end- urminningar um veru mína í Norwich. Þegar eg nú lít yfir liðna æfi, þá eru það æfinlega árin á undan og árin sem komu á eftir, er efst verða í huga mér. Lausnin úr útlegðinni kom, þegar frændi minn dó. Hann hafði auðsýnt mér mikinn kæileika og eg tregaði dauða hans einlæglega; og það var ekki laust við að eg iðraðist nú þeirrar breytni minnar við hann, að eg hafði gert honum sorg með því að neita að taka við eignum hans óskiftum að honum látnum gegn því að halda atvinnurekstri hans áfram og enda líf mitt sem verksmiðjurekandi og klæðavefari í Norwich. Ef eg hefði gert það, er það víst, að mér hefði auðnast að lifa friðsamlegra og áhyggjuminna lífi og að deyja frá meiri veraldlegum auði, en eg nú mun gera. En samt sem áður 20

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.